Sundsvall Dragons náði ekki að fylgja eftir sterkum sigri sínum á toppliði Boras Basket í sænsku úrvalsdeildinni þegar þeir lágu fyrir Jamtland í gær. Sundsvall er sem fyrr í þriðja sæti deildarinnar en Norrkoping Dolphins jöfnuðu Sundsvall að stigum með sigri á Uppsala í þessari umferð. Það er hins vegar fátt sem bendir til annars en að Boras og Södertälje muni keppast um deildarmeistaratitilinn
Boras Basket mætti í heimsókn í Sundsvall á föstudag og unnu Hlynur Bærings og félagar góðan sigur 76-72. Hlynur var stigahæstur í leiknum með 16 stig og tók þar fyrir utan 15 fráköst. Jakob Sigurðarson setti 10.
Drekarnir mættu svo í gær liði Jamtland Basket, sem er við botninn á deildinni, og höfðu heimamenn í Jamtland betur í þeim leik 71-63. Jakob átti flottan leik með 19 stig á meðan Hlynur hefur séð betri daga en hann var með 11 stig og 9 fráköst.




