HomeFréttirSundsvall lá heima gegn liðinu í 7. sæti

Sundsvall lá heima gegn liðinu í 7. sæti

 
Sundsvall Dragons gerðu nokkuð í kvöld sem hefur ekki tíðkast mjög hjá þeim í sænsku úrvalsdeildinni en liðið tapaði þá heimaleik. Jamtland Basket kom í heimsókn og hafði betur gegn Sundsvall, 61-74. Þrátt fyrir ósigurinn er Sundsvall á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar með 50 stig.
Liam Rush var stigahæstur hjá Sundsvall með 17 stig, Jakob Örn Sigurðarson bætti við 10 stigum og 5 fráköstum og Hlynur Bæringsson var með 3 stig, 10 fráköst og 3 stoðsendingar.
 
Fréttir
- Auglýsing -