Tveir leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gærkvöldi þar sem Jakob og Hlynur komust á nýjan leik á sigurbraut með Sundsvall Dragons eftir nokkuð óvænt tap í síðustu umferð. Sundsvall tók á móti Norrköping Dolphins í gærkvöldi og skellti gestum sínum 105-90. Hlynur Bæringsson splæsti í þrennu og nú eru Sundsvall Dragons aðeins einum sigri frá því að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í Svíþjóð.
Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur hjá Sundsvall í gær með 28 stig og Hlynur bætti við 14 stigum, 10 fráköstum og 11 stoðsendingum. Eftir sigurinn er Sundsvall sem fyrr á toppi deildarinnar og nú með 52 stig á toppi deildarinnar.
Sundsvall verða svo aftur á ferðinni annað kvöld þegar liðið mætir 08 Stockholm HR á útivelli og Helgi Már Magnússon og Uppsala Basket fara í heimsókn til LF Basket.





