Styrmir Snær atkvæðamikill í fyrsta sigurleik Belfius Mons

Styrmir Snær Þrastarson og Belfius Mons lögðu Okapi Aalst í kvöld í BNXT deildinni í Belgíu, 89-78.

Á tæpum 22 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Styrmir Snær 17 stigum, 2 fráköstum og stoðsendingu.

Leikurinn var sá fyrsti sem Mons vinna á tímabilinu, en þeir eru nú í 10. sæti belgíska hluta deildarinnar með einn sigur og fimm töp.

Tölfræði leiks