Orri með 18 stig gegn BBC Nord

Sigurganga Orra Gunnarssonar og Swans Gmunden í austurrísku úrvalsdeildinni hélt áfram í dag er liðið lagði BBC Nord Dragon nokkuð örugglega, 75-97.

Á tæpum 23 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Orri 18 stigum, 4 fráköstum og stoðsendingu.

Swans eru eftir leik dagsins í öðru sæti deildarinnar með fimm sigra og eitt tap það sem af er tímabili.

Tölfræði leiks