spot_img
HomeFréttirStrákunum líður vel í Mónakó

Strákunum líður vel í Mónakó

15:20 

{mosimage}

A-landslið karla kom til Mónakó um hálf tíu leitið að staðartíma í gærkvöldi eftir um það bil 13 klst ferðalag. Bjartsýni og ánægja er í íslenska hópnum og setur liðið markið hátt fyrir þessa leika. 

Lagt var af stað klukkan 5:00 að íslenskum tíma úr Laugardal. Flogið var til Milano og svo keyrt þaðan til Mónakó. Íslenski hópurinn gistir á skemmtiferðaskipi í höfninni í Mónakó með öllum þátttakendunum á Smáþjóðaleikunum. Fyrsta æfingin hjá liðinu var í morgun og gekk vel.

Leikmenn og þjálfarar voru ánægðir með aðstöðuna í Mónakó. Í dag mun liðið svo safna orku fyrir fyrsta leikinn sem að verður á morgun klukkan 13:30 að íslenskum tíma. Þá munu strákarnir mæta Andorra.  

Opnunarhátíðin verður í kvöld klukkan 19:00 að íslenskum tíma. Fjölmiðlamenn frá RÚV og mbl eru í Mónakó og ætla að gera smáþjóðaleikunum góð skil á sýnum miðlum. Einnig verður hægt að fylgjast með gangi mála á heimasíðu mótsins og að sjálfsögðu á kki.is. 

Leikjaplan íslenska liðsins: 

Þriðjudagur 5. júní kl. 13:30 Ísland-Andorra

Miðvikudagur 6. júní kl. 16:00 Ísland-Lúxemburg

Fimmtudagur 7. júní kl. 18:30 Ísland-Mónakó

Föstudagur 8. júní kl. 16:00 Ísland-San Marinó

Laugardagur 9. júní kl. 13:00 Ísland-Kýpur

 

 www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -