Um helgina fór fram önnur umferðin í átta liða úrslitum WNBA og eru tvö lið búin að tryggja sér þriðja leikinn sem fara fram á morgun, þriðjudag. Los Angeles Sparks og Connecticut Sun tryggðu sér sæti í undanúrslitunum á laugardaginn en á sunnudaginn náðu Indiana Fever og Seattle Storm að tryggja sér oddaleik.
San Antonio Silver Stars 94 – Los Angeles Sparks 101
Þetta var núna í fjórða skiptið í röð sem að Silver Stars eru slegnar út í átta liða úrslitum. Eftir að hafa verið allt að 22 stigum undir náðu Silver Stars að minnka muninn niður í 6 stig um miðjan fjórða leikhluta og ætluðu að selja sig dýrt í þessum leik. En nær komust þær ekki og eru því komnar í vetrarfrí. Sparks er komið í undanúrslit og mun mæta annað hvort Seattle Storm eða Minnesota Lynx.
Stigahæstu leikmenn Silver Stars:
Sophia Young 28 stig, Jia Perkins 16 stig, Becky Hammon 15 stig, Danielle Adams 12 stig og Shameka Christon 11 stig.
Stigahæstu leikmenn Sparks:
Candace Parker 32 stig (9 fráköst og 6 stoðsendingar), Kristi Toliver 23 stig, Alana Beard 17 stig og Delisha Milton-Jones 10 stig.
New York Liberty 62 – Connecticut Sun 75
Liberty byrjaði leikinn miklu betur og voru búnar að ná góðri forystu í öðrum leikhluta. Sun, hins vegar, börðust vel og smátt og smátt byrjuðu að saxa á forskot Liberty. Það var svo fjórði leikhlutinn sem gerði útslagið en þann leikhluta vann Sun 25-10 og eru því komnar áfram í undanúrslit og mæta annað hvort Indiana Fever eða Atlanta Dream.
Stigahæstu leikmenn Liberty:
Cappie Pondexter 20 stig, Kara Braxton 10 stig og Essence Carson 8 stig.
Stigahæstu leikmenn Sun:
Tina Charles 25 stig (14 fráköst), Asja Jones 20 stig, Kara Lawson 15 stig og Danielle McCray 8 stig.
Atlanta Dream 88 – Indiana Fever 103
Indiana Fever kom svo sannarlega til baka í þessum leik og hreinlega völtuðu yfir gestgjafa sína. Þær sýndu svo sannarlega að þær ætluðu ekki að gefa Dream þetta svona auðveldlega og unnu sér inn oddaleik. Liðið í heild sinni var að spila vel hjá Fever en af þeim sjö leikmönnum sem spiluðu leikinn skoruðu sex af þeim 10 stig eða meira. Dream og Fever mætast svo aftur í Indiana á morgun til að skera úr hvort liðið mun mæta Sun í undanúrslitunum.
Stigahæstu leikmenn Dream:
Angel McCoughtry 22 stig, Lindsey Harding 17 stig, Sancho Lyttle 15 stig og Erika de Souza 10 stig.
Stigahæstu leikmenn Fever:
Tamika Catchings 25 stig (13 fráköst, 18 þessara stiga komu í 4. leikhluta), Briann January 24 stig (7 stoðsendingar), Erlana Larkins 16 stig og Shavonte Zellous 14 stig.
Seattle Storm 86 – Minnesota Lynx 79 (2 framlengingar)
Storm nær að jafna þegar ein sekúnda er eftir af venjulegum leiktíma með þrist frá Lauren Jackson. Fyrsta framlengingin fer 5-5 þar sem að Storm jafnar aftur með þrist en þá var það Tanisha Wright sem skellti einum í netið. Lynx hafði þó tækifæri á því að komast aftur yfir en Seimone Augustus nýtur illa skot sitt og bauð upp á fallegan loftbolta. Í seinni framlengingunni voru það Storm sem áttu leikinn og unnu hana 11-4, þar sem Sue Bird bauð til dæmis upp á 2 þrista. Það verður því oddaleikur á morgun þar sem liðin mætast aftur í Minnesota.
Stigahæstu leikmenn Storm:
Sue Bird 22 stig (7 stoðsendingar), Tanisha Wright 18 stig (7 stoðsendingar), Camille Little 12 stig, Tina Thompson 10 stig (9 fráköst) og Lauren Jackson 9 stig (14 fráköst).
Stigahæstu leikmenn Lynx:
Rebekkah Brunson 22 stig (15 fráköst), Seimone Augustus 20 stig, Maya Moore 12 stig og Lindsay Whalen 10 stig.
Mynd/ Sue Bird skoraði 22 stig í sigri Storm á Lynx




