HomeFréttirStórleikur í DHL-höllinni - KR fær Tindastól í heimsókn

Stórleikur í DHL-höllinni – KR fær Tindastól í heimsókn

Stórleikur fer fram í kvöld í DHL höllinni þegar heimamenn í KR taka á móti toppliði Tindastóls. Þessum liðum var spáð efstu tveimur sætunum fyrir tímabilið og eru enn mjög líkleg til árangurs. 

 

KR sem hefur átt við nokkur meiðslavandamál að stríða hefur ekki alveg náð takti í frammistöðu sinni í vetur. Liðið tapaði tveimur leikjum í nóvember en endaði mánuðinn á góðum útisigri á Keflavík.

 

Tindastóll er í öðru sæti deildarinnar fyrir leikinn en ÍR jafnaði liðið að stigum í gær en á leik á Sauðkrækinga. Eftir ósannfærandi byrjun Tindastóls hefur liðið komist á gott skrið og ekki tapað leik síðan. Síðasti tapleikur liðsins var gegn ÍR þann 5. október. 

 

Ljóst er að stemmningin verður mikil í Vesturbænum í kvöld. Skagfirðingar munu væntanlega fjölmenna eins og þeim er von og vísa. KR þarf því að verja heimavöll sinn í kvöld en með sigri getur Tindastóll náð sex stiga forystu á KR. 

 

Fjallað verður um leikinn á Karfan.is í kvöld. 

 

 

 

Leikir dagsins:

 

Dominos deild karla:

 

KR – Tindastóll kl 19:15 í beinni á Stöð 2 Sport

 

1. deild karla 

 

Breiðablik – FSu kl 19:15 

 

 

Mynd / Hjalti Árna – Hester og Brynjar Þór berjast í síðustu viðureign þessara liða

Fréttir
- Auglýsing -