Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari karlaliðs Keflavíkur í Bónusdeild karla, fagnar fertugsafmæli sínu í dag. Njarðvík, uppeldisfélag hans, minntist tímamótanna með afmæliskveðju á samfélagsmiðlum í dag þar sem farið var yfir feril hans.

Daníel lék upp alla yngri flokka Njarðvíkur og spilaði með meistaraflokki félagsins í úrvalsdeild á árunum 2004 til 2008, þar sem hann lék alls 31 leik í deild og úrslitakeppni. Á leikmannaferli sínum lék hann einnig með Breiðabliki, Stjörnunni og Grindavík.

Hann varð bikarmeistari með Njarðvík árið 2005, féll um deild með Breiðabliki 2010 og vann svo bæði Íslandsmeistaratitilinn árið 2013 og bikarmeistaratitilinn árið 2014 með Grindavík. Í dag stýrir Daníel liði Keflavíkur í Bónusdeild karla.




