Bakvörðurinn Hákon Örn Hjálmarsson hefur gengið í raðir Njarðvíkur frá ÍR og mun leika með Ljónunum út yfirstandandi tímabil í Bónusdeild karla.
Hákon, sem er uppalinn í Breiðholtinu og á átta tímabil að baki með ÍR í efstu deild, var með tæp 16 stig og 5 stoðsendingar að meðaltali í fyrstu þremur leikjum vetrarins áður en meiðsli settu strik í reikninginn.
Í tilkynningu Njarðvíkur fagnar Hafsteinn Sveinsson formaður komu hans og segir Hákon vera þekkta stærð sem muni bæði auka breiddina og styrkja sóknarleik liðsins á komandi vikum.




