spot_img
HomeFréttirStóri dagurinn runninn upp!

Stóri dagurinn runninn upp!

08:00
{mosimage}

(Verðlaunin eftirsóttu!) 

Þá er komið að stóru stundinni, bikarúrslitin fara fram í Laugardalshöll í dag og hefjast leikar stundvíslega kl. 14:00 þegar Íslands- og bikarmeistarar Hauka mæta Grindavík í kvennaflokki og kl. 16:00 mætast Snæfell og Fjölnir í karlaflokki. Báðir leikirnir verða í beinni útsendingu hjá RÚV. Aðeins eitt lið sem í dag leikur til úrslita hefur áður orðið bikarmeistari og það eru Haukakonur. Hvorki Grindavík, Snæfell eða Fjölnir hafa áður orðið bikarmeistarar en öll hafa liðin áður leikið til bikarúrslita. 

Hér að neðan sýnum við leið liðanna í bikarúrslit og líkleg byrjunarlið: 

Leiðin í bikarúrslit: 

Haukar kvk:
Haukar 117-28 Keflavík B
Haukar 90-55 Hamar
Haukar 82-63 Fjölnir 

Grindavík kvk:
Haukar B 55-94 Grindavík
Grindavík 93-80 KR
Grindavík 66-58 Keflavík 

Fjölnir kk:
KR B 66-92 Fjölnir
Fjölnir 105-36 Þróttur Vogum
Fjölnir 87-52 Þór Þorlákshöfn
Skallagrímur 83-85 Fjölnir 

Snæfell kk:
Haukar 63-89 Snæfell
Þór Akureyri 74-106 Snæfell
Snæfell 86-84 Keflavík
Njarðvík 77-94 Snæfell 

Líkleg byrjunarlið

Grindavík kvk:
Joanna Skiba
Jovana Lilja Stefánsdóttir
Ólöf Helga Pálsdóttir
Petrúnella Skúladóttir
Tiffany Roberson 

Haukar kvk
Kiera Hardy
Kristrún Sigurjónsdóttir
Unnur Tara Jónsdóttir
Ragna Margrét Brynjarsdóttir
Telma B. Fjalarsdóttir 

Snæfell kk:
Justin Shouse
Slobodan Subasic
Sigurður Þorvaldsson
Ingvaldur Magni Hafsteinsson
Hlynur Elías Bæringsson

Fjölnir kk:
Helgi Þorláksson
Anthony Drejaj
Níels Dungal
Pete Strobl
Sean Knitter

Fjölmennum í Laugardalshöllina í dag!!!

Haukar-Grindavík í kvennaflokki kl. 14:00

Snæfell-Fjölnir í karlaflokki kl. 16:00

Fréttir
- Auglýsing -