Í gær léku Stjörnukonur síðasta deildarleikinn í 1. deild kvenna í körfu þegar þær mættu Haukum B. Fyrir leikinn var Stjarnan búin að tryggja sér deildarmeistaratitilinn og því hafði leikurinn enga merkingu fyrir liðin. Leikurinn var þrátt fyrir það æsispennandi en svo fór að lokum að Haukar sigruðu með 5 stiga mun, 73-68. www.stjarnan.is greinir frá.
Eftir leikinn fengu Stjörnustelpur afhentann bikar fyrir sigur í deildinni og var mikil gleði í herbúðum Stjörnustúlkna enda fyrsti titill sem kvennalið í Stjörnnunni vinnur í körfubolta. Sögulegur dagur!
Stelpurnar mæta svo Valsstúlkum í úrslitarimmu um hvort liðið fer upp í úrvalsdeild og verða leikdagar auglýstir þegar þar að kemur, en þeir liggja ekki fyrir eins og er.





