Stjarnan tryggði sér áframhaldandi keppnisrétt í Poweradebikarnum með sigri á Skallagrím í Garðabænum í kvöld. Leikurinn var kaflaskiptur og æsispennandi þegar allt var undir á lokamínútunum. Bæði lið áttu mjög góða kafla í leiknum og skiptust liðin 11 sinnum á að leiða leikinn. Skallagrímur hafði 2 stiga forskot þegar tvær mínútur voru eftir af leiknum en það var Stjarnan sem reyndist betri á lokakaflanum og unnu með 6 stigum, 84-78.
Stigahæstur í liði Stjörnunnar var Marvin Valdimarsson með 18 stig og 8 fráköst en hann reyndist sínum mönnum heldur betur vel á lokakaflanum. Næstu menn voru Brian Mills með 17 stig og Jovan Zdravevski með 16 stig. Í liði Skallagríms voru það félagarnir Carlos Medlock og Haminn Quaintance sem voru stigahæstir með 28 stig hvor, næsti maður á blað var Páll Axel Vilbergsson með 9 stig.
Skallagrímur byrjaði leikinn vel og setti fyrstu fimm stig leiksins. Stjarnan lét þó ekki leika sig svo grátt lengi og skoraði 11 stig á næstu 4 mínútum gegn núll stigum gestana. Það var ekki fyrr en fyrsti leikhluti var rúmlega hálfnaður sem Haminn skoraði þriðju körfu Skallagríms. Gestirnir tóku þá við sér og voru búnir að jafna í stöðunni 13-13 með laglegri troðslu frá Haminn. Liðin skiptu með sér stigunum það sem eftir lifði fyrsta leikhluta og það var enn jafnt, 18-18 eftir 10 mínútur af leik.
Kaflaskiptingin í leiknum hélt áfram í upphafi annars leikhluta því á fyrstu fjórum mínútum leikhlutans skoraði stjarnan 8 stig gegn aðeins tveimur stigum gestana, 26-20. Skallagrímur var þó aldrei langt undan og tóku spretti inná milli þar sem þeir virtust líklegir til að jafna metin. Eitthvað vantaði þó uppá því Stjarnan refsaði þeim við fyrsta tækifæri. Munurinn á liðunum í öðrum leikhluta varð mest 12 stig í stöðunni 47-35. Skallagrímur hafði þá farið illa að ráði sínu, brutu af sér, fengu tæknivillu í kaupæti og Stjarnan fór því fjórum sinnum á línuna og fékk boltan í þokkabót. Þegar þetta gerðist var hálf mínúta eftir af fyrri hálfleik og Stjarnan því að auka við forskotið á besta tíma. Skallagrímur áttu síðustu stig leikhlutans og það munaði því 10 stigum á liðunum í hálfleik, 47-37.
Stigahæstur í liði Stjörnunnar í hálfleik var Jovan Zdravevski með 11 stig en næstu menn voru Brian Mills með 10 stig og Justin Shouse með 9 stig. Hjá Skallagrím var Haminn Quaintance með 15 stig en næstu menn voru Carlos Medlock með 11 og Páll Axel með 3 stig.
Það var Skallagrímur sem mætti til leiks í upphafi seinni hálfleiks en þeir gjörsamlega keyrðu yfir heimamenn á upphafsmínútunum og voru búnir að minnka muninn niður í 2 stig þegar leikhlutinn var hálfnaður, 51-49. Stjarnan hafði því aðeins skorað 4 stig á fyrstu fimm mínútum seinni hálfleiks. Skallagrímur var svo búinn að jafna leikinn um mínútu síðar í stöðunni 53-53. Stemmingin var öll með gestunum á þessum kafla og þeir voru komnir yfir stuttu seinna, 56-58. Stjarnan var að tapa boltanum aftur og aftur með klaufaskap og einbeitingarleysi. Skallagrímsmenn tóku leikhlé í stöðunni 58-58 þegar tvær mínútur voru eftir af þriðja leikhluta. Einbeitingarleysi Stjörnunnar kostaði þá mikið í leikhlutanum og enn eitt dæmið um það var lokasókn þriðja leikhluta þegar Skallagrímur ætlaði að taka lokaskot leiksins, það geigaði en Carlos Medlock náði frákastinu fyrir gestina og rétt náði skotinu áður en flautan gall. Það skot fór ofaní og voru því gestirnir þremur stigum yfir þegar fjórði leikhlut hófst, 61-64.
Forskot Skallagríms náði mest 6 stigum á upphafsmínútum fjórða leikhluta í stöðunni 63-69. Stjarnan sýndi þó mátt sinn og voru komnir aftur yfir um tveimur mínútum síðar í stöðunni 70-69 þegar Justin Shouse setti tvö af vítalínunni. Það var kominn hiti í leikinn og menn orðnir meðvitaðir um að hvert skot telur. Skallagrímur komst aftur yfir þegar leikhlutinn var rétt rúmlega hálfnaður í stöðunni 70-73. Haminn sem hafði hvílt allan þriðja leikhluta eftir að hafa látið skapið fara með sig í fyrri hálfleik og uppskera tæknivillu fyrir vikið var aftur mættur á völlinn en endist ekki lengi. Hann fékk sína fimmtu villu eftir nokkrar mínútur og var hársbreidd frá því að fá sína aðra tæknivillu í þokakbót fyrir kjaftbrúk. Þegar tvær mínútur voru til leiksloka tók Stjarnan leikhlé en þeir voru þá 4 stigum undir, 73-77. Stjarnan nýtti leikhléið vel því þeir voru búnir að jafna leikinn í stöðunni 78-78 þegar Marvin Valdimarsson setti niður sniðskot og víti að auki. Marvin var svo aftur að verki stuttu seinna þegar hann stal boltanum og átti nokkuð greiða leið að körfunni en Davíð Ásgeirsson braut nokkuð augljóslega á honum og fékk fyrir vikið óíþróttmannslega villu dæmda á sig. Marvin nýtti vítin en fékk svo dæmda á sig sóknarvillu strax í kjölfarið. Lokamínútan var æsispennandi og mikið um mistök á báða bóga. Menn létu dómarana heyra, stuðningsmenn stóðu á fætur og en að lokum var það Stjarnan sem hafði betur 84-78.
Umfjöllun : [email protected]
Mynd: [email protected]




