HomeFréttirStjarnan niðurlægir Grindavík í Garðabænum

Stjarnan niðurlægir Grindavík í Garðabænum

Stjarnan sýndi svo sannarlega klærnar í kvöld þegar þeir tóku á móti Grindavík í öðrum leik úrslitaeinvigis liðanna.  Stjarnan var mætt strax frá fyrstu mínútu, náðu sér í 15 stiga forskot fyrir hálfleik og gjörsamlega keyrðu svo yfir gestina í seinni hálfleik.  Niðurlæging Grindavíkur var algjör þegar munurinn var farinn að slefa í 40 stig og bæði lið voru búin að skipta unglingaliðs leikmönnum inná.  Ótrúleg sjón í leik um íslandsmeistaratitilinn.  Stjarnan hefur því jafnað metin í einvíginu og næsti leikur fer fram í Grindavík á mánudaginn næstkomandi.  Stigahæstur í liði Stjörnunnar var Justin Shouse sem stjórnaði sínu lið af algjörri fagmennsku í kvöld, setti 16 stig, hirti 10 fráköst og gaf 5 stoðsendingar.  Næstu menn voru Jarrid Frye með 15 stig og Brian Mills með 14 stig.  Eini maðurinn sem virtist geta skotið boltanum hjá Grindavík í kvöld var Aaron Broussard en hann setti 20 stig en næstu menn voru Samuel Zeglinski með 15 stig og Þorleifur Ólafs með 9 stig.  
 

Það var Stjarnan sem byrjaði af meiri krafti í upphafi leiks og komust í 5-0 og síðar 7-1 eftir glæsilega troðslu frá Brian Mills.  Stjarnan staðsetti sig rétt í vörninni og uppskáru nokkur auðveld hraðaupphlaup.  Sigurður Þorsteinsson var fljótur að sanka að sér villunum í Garðabænum og fékk sína aðra villu strax eftir 3 mínútur af leik, sú þriðja kom um 3 mínútum seinna og fékk hann þá verðskuldaða hvíld á bekknum.  Stjarnan hélt sér skrefinu á undan gestunum allan fyrsta leikhluta og höfðu í kringum 6 stiga forskot svo gott sem allan leikhlutan.  Stigaskorun dreifðist vel hjá báðum liðum í fyrsta leikhluta en það kom ekki nokkrum á óvart að stigahæsti maður vallarins var Aaron Broussard með 10 stig.  Stjarnan hafði 5 stiga forskot eftir leikhlutan, 23-18.  

 

Kjartan Atli byrjaði annan leikhluta af krafti fyrir Stjörnuna og svaraði kalli stuðningsmanna Grindavíkur sem höfðu sungið “hver er þessi Kjartan?”.  Hann tók sig til og varði sniðskot Grindavíkurtröllsins Pattinella “head on” eins og maður myndi segja á frummálinu.  Stjarnan skoraði fyrstu 7 stig annars leikhluta og voru komnir í  30-18 þegar Sverrir tók leikhlé fyrir gestina.  Stjarnan hélt þessu forskoti og bætti hægt og rólega við.  Þegar annar leikhluti var rúmlega hálfnaður var forskotið komið í 16 stig, 36-20.  Sigurður Þorsteins hafði þá náð sér í sína fjórðu villu fyrir einskæran klaufaskap.  Grindavík svaraði hins vegar með tveimur þristum á innan við hálfi mínútu og var munurinn kominn aftur niður í 10 stig, 36-26.  Það sló heimamenn hins vegar ekki út af laginu og þeir voru búnir að vinna upp 16 stiga forskotið aftur þegar ein mínúta var eftir af fyrri hálfleik, 46-30.  Grindavík náði að laga þá stöðu örlítið áður en flautað var til hálfleiks en þá höfðu meimamenn 15 stiga forskot, 49-34.  

 

Stigahæstu menn í liði Stjörnunnar voru þeir Marvin Valdimarsson og Jarrid Frye með 11 stig hvor en næsti maður var Justin Shouse með 9 stig, 5 stoðsendingar og 7 fráköst.  Í liði Grindavíkur var Aaron Broussard stigahæstur með 14 stig en næstu menn voru Samuel Zeglinski með 10 stig og Þorleifur Ólafsson með 4 stig.  

 

Það voru Grindvíkingar sem fundu sér auðveldari leiðina að körfunni í upphafi seinni hálfleiks og minnkuðu muninn smá saman.  Eins og fyrr í leiknum þá létu heimamenn það ekki slá sig útaf laginu þó Grindavík ætti góðan kafla.  Stjarnan svaraði þessari byrjun hjá Grindavík með flottum kafla og höfðu náð 19 stiga forskoti þegar fjórar mínútur voru liðnar af þriðja leikhluta, 59-40.  Sverrir tók svo leikhlé fyrri Grindavík um mínútu síðar, 61-42 fyrir Stjörnuna.  Varnarleikur heimamanna var að ganga að því er virtist nánast fullkomnlega upp, þeir þurftu sjaldan að brjóta og brutu viturlega þegar þeir gerðu það.  Grindavík lét leika sig grátt og Brian Mills sá nokkuð vel um það þegar um ein mínúta var eftir af þriðja leikhluta, hann varði þá skot Þorleifs Ólafs með tilþrifum og setti svo þrist nokkrum sekúndum seinna, 72-48.  Það var hreinlega verið að keyra yfir Grindavík.  Justin Shouse bætti svo við síðustu þremur stigum leikhlutans með laglegu sniðskoti yfir tvo menn og vítaskotið að auki, 75-48, eftir þrjá leikhluta.  

 

Það sást á öllum leikmönnum beggja liða fljótlega í fjórða leikhluta að það var öllum ljóst hvernig leikurinn færi.  Grindavík barðist fyrir hverjum bolta en það bara gekk hreinlega ekkert upp hjá þeim.  Skotin voru ekki jafn vönduð hjá heimamönnum og yngri leikmenn fengu að spreyta sig fljótlega hjá Grindavík.  Þetta breyttist því fljótt ó óagaðan tilviljunakenndan körfubolta sem var lítið fyrir augað.  Þegar fjórði leikhluti var hálfnaður höfðu heimamenn 36 stiga forskot, 84-48.  Fyrstu stig Grindavíkur í fjórða leikhluta komu svo þegar rúmlega 6 mínútur voru liðnar og fögnuðu stuðningsmenn beggja liða.  Síðustu mínúturnar breyttist leikurinn svo í unglingaflokksleik sem hlítur að vera einsdæmi í einvígi um íslandsmeistaratitil í efstu deild á Íslandi.  Stjarnan var með unninn leik í höndunum alla fjórða leikhluta og unglingaflokkurinn þeirra sigldi sigrinum heim, 93-56.  

 

Tölfræði leiksins 

umfjöllun : [email protected]

mynd : Heiða 

Fréttir
- Auglýsing -