spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaStjarnan í úrslit eftir sturlaðan spennuleik!

Stjarnan í úrslit eftir sturlaðan spennuleik!

Leikur 5, 5.5.25 – ODDALEIKUR!

Grindvíkingar rændu til baka ránsfeng Garðbæinga frá því í leik tvö í fjórða leik liðanna á föstudaginn síðasta 2.5.25. Þvílíkur leikur og þvílík endurkoma! Leikar standa því 2-2 í þessari frábæru seríu undanúrslitanna í Bónusdeildinni og komið að oddaleiknum í Umhyggjuhöllinni. Allt getur gerst í oddaleik segja menn, það er sannur frasi. Brotnar annað liðið gersamlega? Verður þetta blóðug barátta og allt í járnum í 40 mínútur? Eða kannski í 45 mínútur? Kúla, komið að þér…

Kúlan: ,,Það verða ekkert 4 leikhlutar, það væri algert stílbrot. Leikurinn mun fara í fimm leikhluta, þ.e. í framlengingu. Heimavöllurinn hjálpar og eftir gersamlega vangefinn leik enda leikar með Stjörnusigri, 95-92“.

Byrjunarlið

Stjarnan: Ægir, Hilmar, Febres, Orri, Rombley

Grindavík: Pargo, Kristófer Breki, Kane, Óli, Mortensen 

Gangur leiksins

Grindvíkingar byrjuðu betur með Óla Óla í broddi fylkingar og gestirnir komust í 3-10 eftir þrist frá Óla. Stjörnumenn gerðu gestunum erfitt fyrir næstu mínútrnar með góðum varnarleik og meistari Hlynur Bærings jafnaði leika í 13-13 af línunni um miðjan leikhlutann. Heimamenn sigu svo örlítið framúr gestunum og leiddu 25-21 eftir einn.

Óli Óla setti annan leikhluta af stað með sínum þriðja þristi en annar stórmeistari, Hlynur Bærings, svaraði í sömu mynt hinum megin. Eftir rúmlega þriggja mínútna leik var Stjarnan búin að byggja upp múrinn fræga í stöðunni 34-24 og Jóhann Þór blés til leikhlés. Góður varnarleikur gestanna í bland við oddaleiks-taugatitring gerði það að verkum að ekkert vildi niður hjá Stjörnumönnum sem skoruðu aðeins 6 stig fram að hálfleik! Gestirnir voru ekki beint að raða þeim niður heldur og leikar stóðu 40-36 í pásunni. Stjörnumenn skutu 2-15 í þristum í fyrri hálfleik, gestirnir lítið eitt betur en sóknarfráköst heimamanna skýrðu nauma forystu Garðbæinga í hálfleik.

Tilfinningin var sú að heimamenn væru með ágæt tök á leiknum og 7-0 byrjun þeirra í seinni hálfleik renndi stoðum undir þá tilfinningu. Um miðjan leikhlutann var staðan 54-40 og býsna þungt yfir leikmönnum Grindvíkinga. Lagio var eiginlega einu góðu fréttirnar fyrir gestina en hann kom sprækur inn af bekknum í kvöld og einhvern veginn héngu gestirnir inn í þessu. Aðeins var 9 stiga munur fyrir lokaleikhlutann, 62-53.

Það var sannkallað taugastríð í gangi meira og minna allan lokaleikhlutann. Þegar tæpar 6 mínútur voru eftir tók Grindavík leikhlé í stöðunni 64-57, heil 6 stig skoruð á góðum 4 mínútum! Áfram gátu heimamenn ekki keypt sér körfu en til allrar hamingju fyrir Garðbæinga var frekar lítið að frétta í sókninni hjá Gulum að sama skapi. Kane minnkaði muninn í 65-63 á línunni þegar tæpar 3 mínútur voru eftir og æsilegar lokamínútur framundan. Þegar sléttar 2 mínútur lifðu leiks setti Hilmar Smári körfu leiksins, smellti þristi niður í andlitið á Kane og fiskaði jafnframt fimmtu villuna á kappann! Svakalegt augnablik og allt lék á reiðiskjálfi í húsinu. Hilmar setti vítið, staðan 70-65 og heimamenn komnir með aðra löppina í úrslitaeinvígið. 

Úrslitakeppnin í körfu svíkur hins vegar engan og innan við mínútu síðar voru gestirnir búnir að jafna eftir þrist frá fyrrnefndum Lagio en hann hefur afar gaman af því að jafna leiki með þristum. Rombley tók hins vegar sóknarfrákast tímabilsins skömmu síðar og hamraði kvikindið niður og kom Stjörnunni yfir 72-70. Grindvíkingar fengu 17 sekúndur til að jafna eða stela sigrinum, Pargo reyndi gegnumbrot sem ekki gekk, ekkert dæmt og Orri Gunn kláraði leikinn ískaldur á línunni þegar 2 sekúndur voru eftir. Lokatölur 74-70 og Stjörnumenn komnir í úrslitaeinvígið!

Menn leiksins

Hilmar Smári var stigahæstur Stjörnupilta með 21 stig af 74 en einmitt í svona leik er ekki amalegt að vera með sóknarvél eins og Hilmar Smára innanborðs! Ægir setti 13, tók 8 fráköst og gaf 6 stoðsendingar sem er ekkert til að skammast sín fyrir. 

Hjá Grindvíkingum var Kane og Óli með 16 stig hvor, Kane bætti við 13 fráköstum og 7 stoðsendingum og Óli hirti 9 fráköst. Nú er kannski óþarfi að leggja Pargo greyið í einelti en hann hitti ekki rassgat í kvöld, endaði með 6 stig og 5 tapaða bolta en taka verður fram að hann tók 9 fráköst og gaf 8 stoðsendingar í leiknum.

Kjarninn

Sjósókninni er því miður lokið hjá Grindvíkingum þetta tímabilið. Liðið skreið saman frekar seint á tímabilinu en gladdi körfuboltaaðdáendur meir og meir eftir því sem leið á. Það er bara eitt lið sem sigrar þegar upp er staðið og Grindavík þarf að sætta sig við að róðraferðirnar verða ekki fleiri í bili. Takk fyrir tímabilið, Grindvíkingar.

Stjörnumenn eiga svo sannarlega skilið að fara í úrslitaeinvígið. Liðið hefur verið í góðu jafnvægi allt tímabilið, lítið sem ekkert um mannabreytingar og Stjörnumenn voru kannski pínu klaufar að missa frá sér deildarmeistaratitilinn. En það eru sömu reglur í leiknum í Garðabæ og á Króknum – undirritaður getur ekki beðið eftir úrslitaseríunni!

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -