HomeFréttirStjarnan betri aðilinn allan leikinn

Stjarnan betri aðilinn allan leikinn

 

Stjarnan rúllaði nokkuð örugglega yfir ÍR í garðabænum í kvöld, 89-61.  Stjarnan tók af skarið snemma í leiknum og gerðu út um hann í byrjun þriðja leikhluta með 10-0 byrjun og litu aldrei til baka.  Stigahæstur í liði Stjörnunnar í kvöld var Dagur Kári Jónsson með 22 stig og 5 stoðsendingar en næstu menn voru Matthew James Hairston með 18 stig og 16 fráköst og Justin Shouse með 17 stig og 10 stoðsendingar.  Í liði ÍR voru þrír leikmenn stigahæstir með 11 stig hver, það voru þeir Matthías Orri Sigurðarson, Sveinbjörn Claessen og Calvin Lennox Henry.  

 

Heimamenn mættu öflugir til leiks og keyrðu á gestina.  Strax þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður höfðu þeir náð 9 stiga forskoti, 11-2 en ÍR var alls ekki að finna sig.  Þeir voru að velja mjög erfið skot og varnarleikur Stjörnunnar virkaði fullkomnlega.  Örvar tók leikhlé fyrir ÍR strax eftir 5 mínútna leik. Stjarnan undirstrikaði yfirburði sína  nokkrum mínútum síðar með fallegri alley-oop troðslu.  Dagur Kári stal þá boltanum, brunaði fram og fleygði boltanum uppí loftið þar sem Hairston flaug framhjá og tróð honum, 18-4.  Forskot Stjörnunna stóð í 15 stigum eftir fyrsta leikhluta, 25-10.  

 

ÍR rétti sinn hlut örlítið í öðrum leikhluta og virtust finna aðeins betri takt í sóknarleiknum.  Það skilaði þeim þó ekki meiri en svo að þegar annar leikhluti var rúmlega hálfnaður munaði 11 stigum á liðunum, 35-24.  Þetta dugði skammt því Stjarnan keyrði hratt á gestina og refsaði þeim grimmt fyrir hvert skot sem geigaði.  Þegar ein mínúta var eftir af fyrri hálfleik  var forskotið komið uppí 18 stig, 44-26.  Björgin Ríkarðsson átti síðasta skot fyrri hálfleiks sem söng í netinu þegar flautan gall og minnkaði muninn niður í 14 stig, 44-30.  

 

Stigahæstur í liði Stjörnunnar í hálfleik voru Justin Shouse og Marvin Valdimarsson með 11 stig hvor en Marvin var með 8 fráköst og Justin með 6 stoðsendingar.  Næsti maður á blað var M. Hairston með 10 stig og 10 fráköst.

 

Í liði ÍR var C. Henry stigahæstur með 9 stig og 6 fráköst, næstu menn voru Sveinbjörn Claessen með 8 stig og Matthías Sigurðarson með 6 stig, 5 fráköst og 3 stoðsendingar.  

 

Stjarnan  gjörsamlega kláraði leikinn í þriðja leikhluta, þeir mættu ákveðnir til leiks og var forskot þeirra komið upp í 54-30 strax eftir tvær mínútur af þriðja leikhluta.  Stjarnan náði forskotinu mest upp í 28 stig í stöðunni 60-32.  Gestirnir náðu aðeins að laga stöðuna eftir það og héldu Stjörnumenn gestunum ca. 20 stigum frá sér næstu mínúturnar.  ÍR bauð ekki uppá mikið í leiknum og voru lengst af með ca. 25% nýtingu.  Þeim tókst þó að laga það örlítið eftir því sem leið á þriðja leikhluta, það varð þó ekki til þess að munurinn minnkaði því þegar einn leikhluti var eftir 22 stiga munur, 68-46.  

 

Það hefur líklega farið örlítð um Stjörnumenn á fyrstu mínútu fjórða leikhluta þegar gestirnir settu fyrstu fimm stig leikhlutans og það á innan við mínútu.  Teitur hafði þá leyft sér að hvíla þrjá byrjunarliðsmenn(Fannar, Shouse og Hairston) en það kom ekki að sök því forskot Stjörnunnar var aftur komið upp í 22 stig þegar fjórar mínútur voru liðnar, 75-53.  Leikurinn varð aldrei spennandi og þegar þrjár mínútur voru eftir fengu minni spámenn beggja liða að spreyta sig.  

 

[email protected]

Tölfræði leiksins 

Mynd: Axel

Myndasafn/Axel

Fréttir
- Auglýsing -