HomeFréttirStjarnan á siglingu: 5. sætið í hendi

Stjarnan á siglingu: 5. sætið í hendi

 
Þó ein umferð sé enn eftir í Iceland Express deild karla verður Stjarnan í 5. sæti, því fær engu breytt. Stjarnan tók í kvöld á móti andlausu Haukaliði í Ásgarði og fengu Haukarnir skell 90-69 í Iceland Express deild karla. Garðbæingar hafa nú unnið síðustu fjóra heimaleiki sína í röð með 24 stig í 5. sæti deildarinnar. Haukar töpuðu í kvöld sínum fimmta deildarleik í röð og taka á móti KFÍ í síðustu umferðinni og dugir þar ekkert minna en sigur til þess að halda lífi í vonum sínum um sæti í úrslitakeppninni.
Garðbæingar komust í 8-2 áður en Haukar ákváðu að hefja leik í kvöld, í stöðunni 14-7 var Fannar Helgason kominn með 8 stig í Stjörnuliðinu og kærkomið að sjá Fannar setja stig á töfluna sem hann hefur gert lítið af þetta tímabilið. Lítið fór fyrir varnarleik liðanna á upphafsmínútunum og tók um sex mínútur að fá fyrstu villu leiksins í hús. Gerald Robinson hélt Haukum nærri Stjörnunni en heimamenn leiddu 23-19 að loknum fyrsta leikhluta.
 
Kjartan Atli Kjartansson kom svellkaldur af Stjörnubekknum og opnaði annan leikhluta með þrist og staðan 26-19. Heimamenn hófu annan leikhluta 9-2 og þá tók Pétur Ingvarsson leikhlé fyrir Hauka. Megnið af leikhlutanum leiddu Garðbæingar með um 10 stiga mun en Hafnfirðingar náðu að klóra í bakkann og minnka muninn í 43-37 fyrir hálfleik með þriggja stiga körfu frá Gerald Robinson.
 
Gerald var með 15 stig og 9 fráköst hjá Haukum í hálfleik en í liði Stjörnunnar var Justin Shouse með 9 stig og 5 stoðsendingar.
 
Garðbæingar héldu fast um stjórnartaumana og komust í 53-40 eftir þriggja stiga körfu frá Fannari Helgasyni. Á sama tíma var Semaj Inge orðinn verulega pirraður í liði Hauka og gekk ekkert né rak í hans leik að þessu sinni en kappinn setti aðeins 3 af 16 teigskotum sínum í leiknum.
 
Staðan að loknum þriðja leikhluta var 72-53 Stjörnunni í vil sem foru að fylgja eftir góðum heimasigri gegn Snæfell í síðustu umferð en Haukar að tapa sínum fimmta deildarleik í röð. Haukar prófuðu svæðisvörn aðeins í fjórða leikhluta en úrslitin voru ráðin, Garðbæingar afgreiddu leikinn 90-69 og mæta Hamri á útivelli í síðustu umferðinni en úrslit þessa leiks munu ekki skipta liðið neinu máli í stöðutöflu deildarinnar. Haukar mæta KFÍ í Hafnarfirði í síðustu umferðinni og mega heldur betur bæta við sig snúning ætli þeir að sjá sigur á ný þetta tímabilið.
 
 
Heildarskor:
 
Stjarnan: Fannar Freyr Helgason 17/13 fráköst, Justin Shouse 17/9 stoðsendingar, Renato Lindmets 13/6 fráköst, Guðjón Lárusson 10/7 fráköst, Marvin Valdimarsson 10/5 fráköst, Jovan Zdravevski 10/7 fráköst, Kjartan Atli Kjartansson 8, Daníel G. Guðmundsson 3, Ólafur Aron Ingvason 2, Magnús Guðmundsson 0, Sigurbjörn Ottó Björnsson 0, Dagur Kár Jónsson 0.
 
Haukar: Gerald Robinson 19/10 fráköst/3 varin skot, Semaj Inge 12/6 stoðsendingar/6 stolnir/3 varin skot, Örn Sigurðarson 11, Davíð Páll Hermannsson 8, Haukur Óskarsson 8/5 stoðsendingar, Sveinn Ómar Sveinsson 5/6 fráköst, Sigurður Þór Einarsson 3, Emil Barja 3/6 stoðsendingar, Óskar Ingi Magnússon 0, Guðmundur Kári Sævarsson 0, Alex Óli Ívarsson 0, Steinar Aronsson 0.
 
Dómarar: Jón Guðmundsson, Davíð Kr. Hreiðarsson
 
Ljósmynd/ Tomasz Kolodziejski: Fannar Helgason átti góðan leik með Stjörnuliðinu í kvöld.
 
Umfjöllun: Jón Björn Ólafsson – [email protected]  
Fréttir
- Auglýsing -