Tindastóll bar sigurorð af Hetti, 118–104, í æfingaleik meistaraflokks karla í kvöld, en samkvæmt heimildum voru leiknar 8 auka mínútur í leiknum.
Sóknarleikur beggja liða var í miklum ham frá fyrstu mínútu en heimamenn lögðu grunninn að sigrinum í fyrri hálfleik. Tindastóll skoraði hvorki meira né minna en 42 stig í fyrsta leikhluta (42–28) og leiddi örugglega í hálfleik, 67–46. Höttur beit frá sér í síðari hálfleik og minnkaði muninn, en forskot Stólanna reyndist of mikið til að brúa.
Hjá Tindastóli dreifðist stigaskorið afar vel. Taiwo var stigahæstur með 17 stig, Ragnar skilaði 16 stigum, og þeir Arnar og Haukur bættu við 14 stigum hvor. Í liði Hattar var Josh atkvæðamestur með 23 stig, en þeir Marquis og Sveinn Búi skoruðu 16 stig hvor.




