Það er óhætt að segja að spennan sé mikil fyrir síðustu umferðina í Iceland Express karla. Það er þó ljóst að Snæfell er orðið deildarmeistari og KFÍ og Hamar eru fallin í 1. deild. Karfan.is ætlar nú að renna yfir hvað getur gerst í síðustu umferðinni sem fer fram á fimmtudag.
Snæfell mætir KR og er eins og fyrr segir öruggt með fyrsta sætið. Leikurinn skiptir hins vegar miklu máli fyrir KR því KR getur endað númer 2, 3 eða 4. Vinni KR og Keflavík vinnur Grindavík þá endar KR númer 2, Keflavík númer 3 og Grindavík númer 4. En hvort sem KR vinnur eða tapar og Grindavík vinnur Keflavík þá verður Grindavík númer 2, KR 3 og Keflavík 4. Tapi KR og Keflavík vinnur Grindavík þá verður Keflavík númer 2, Grindavík númer 3 og KR númer 4.
KR, Keflavík og Grindavík geta því öll þrjú orðið númer 2, 3 og 4. Þeir leikir sem skipta máli í þeirri jöfnu eru leikir KR og Snæfells annars vegar og Keflavíkur og Grindavíkur hins vegar.
Stjarnan verður númer 5, ÍR númer 6 og Njarðvík númer 7.
Áttunda og síðasta sætið er svo spurning. Haukar og Fjölnir geta bæði enn náð því sæti. Vinni Haukar þá er 8. sætið þeirra en tapi þeir og Fjölnir vinnur þá nær Fjölnir sætinu og Haukar sitja eftir. Upp getur komið sú staða að Haukar, Tindastóll og Fjölnir verði öll jöfn og þar hafa Fjölnismenn sigurinn og 8. sætið. Baráttan um 8. sætið er því alfarið á milli Fjölnis og Hauka og þeir leikir sem skipta máli í þeirri baráttu eru leikir Fjölnis og ÍR í Dalhúsum og Hauka og KFÍ á Ásvöllum.
Samkvæmt þessu hafa leikir Njarðvíkur og Tindastóls í Njarðvík og Hamars og Stjörnunnar í Hveragerði engin áhrif á úrslitakeppni en Tindastóll er vissulega dottið niður í 10. sæti og vill eflaust reyna að halda í það 9.
Mynd: Þorsteinn Eyþórsson





