spot_img
HomeFréttirSpánn og Úkraína unnu sína leiki í dag

Spánn og Úkraína unnu sína leiki í dag

Tveir aðrir leikir fóru fram í riðil Íslands í undankeppni HM 2023 í dag.

Í þeim fyrri hafði Úkraína betur gegn Hollandi, 77-96 og í þeim seinni rétt marði Spánn lið Ítalíu, 84-88.

Hérna er heimasíða mótsins

Spánn er því eftir leiki dagsins í efsta sæti riðilsins, Ítalía öðru og Georgía, á innbyrðisviðureign, skör ofar en Ísland, en með sama stigafjölda í þriðja sætinu. Ljóst er að lokasprettur keppninnar getur orðið æsispennandi, þar sem aðeins þrír leikir eru til stefnu.

Leikirnir sem eftir eru hjá Íslandi og Georgíu eru:

Ísland

Úkraína úti 14. nóvember

Spánn heima 23. febrúar

Georgía úti 26. febrúar

Georgía

Ítalía heima 14. febrúar

Holland úti 23. febrúar

Ísland heima 26. febrúar

Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil

Fréttir
- Auglýsing -