HomeBónus deildinBónus deild karlaSpá Grindavík og Njarðvík efstu sætum Bónus deildanna

Spá Grindavík og Njarðvík efstu sætum Bónus deildanna

Hlaðvarpið Uncoachables er snúið aftur eftir sumarfrí með nýjan þátt úr stúdíóinu Rabbrýminu. Umsjónarmennirnir Helgi Hrafn Ólafsson og David Patchell fóru yfir helstu félagaskipti sumarsins, nýafstaðna leiki karlalandsliðsins og óskuðu ríkjandi meisturum til hamingju, áður en þeir opinberuðu spá sína fyrir Bónus deildir karla og kvenna.

Hérna er Karfan á Spotify

Niðurstaða spárinnar var fengin út með því að finna meðaltal úr mati þeirra tveggja. Samkvæmt spá Uncoachables verja ríkjandi meistarar titla sína beggja vegna; Grindavík er spáð toppsætinu í karlaflokki og Njarðvík í kvennaflokki.

Spá Uncoachables fyrir Bónus deild karla

  1. Grindavík
  2. Álftanes
  3. Tindastóll
  4. KR
  5. Stjarnan
  6. Valur
  7. Keflavík
  8. ÍR
  9. Njarðvík
  10. Ármann
  11. Sindri
  12. Höttur

Spá Uncoachables fyrir Bónus deild kvenna

  1. Njarðvík
  2. Haukar
  3. Grindavík
  4. KR
  5. Valur
  6. Keflavík
  7. Ármann
  8. Stjarnan
  9. Tindastóll
  10. Fjölnir

Þátturinn er aðgengilegur hér fyrir ofan og undir nafni Körfunnar á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

Fréttir
- Auglýsing -