Hlynur Bæringsson og Jakob Örn Sigurðsson þurftu að þola tap í gærkvöld og horfa á eftir meistaratitlinum til Södertälje Kings. Sundsvall Dragons tapaði leiknum 109-104 í framlengdum leik og einvíginu 4-2.
Leikurinn var spennandi frá fyrstu mínútu og leiddu Drekarnir 46-48 í hálfleik með þá Hlyn og Jakob fremsta meðal jafningja. Sundsvall var sex stigum yfir fyrir fjórða leikhluta og voru það Kóngarnir sem náðu að knýja fram framlengingu. Sundsvall fékk eina tilraun áður en leiknum lauk til að gera út um hann og koma það í hlut Jakobs að taka loka skotið. Skotið geigaði og Södertälje sigraði eftir famlengingu.
Jakob skoraði 27 stig í leiknum og Hlynur skilaði sínu en var með 14 stig, 10 fráköst og 8 stoðsendingar.
Mynd/scanpix




