Garðbæingar nældu sér í tvö stig í gærkvöldi þegar Stjörnumenn lögðu Tindastól í fyrstu umferð Domino´s deildar karla. Karfan.is náði í skottið á Snorra Erni Arnaldssyni aðstoðarþjálfara Stjörnunnar sem sagði það vissulega gott að byrja tímabilið á sigri.
,,Við erum mjög ánægðir með sigurinn. Þetta er mjög erfiður útivöllur og það er ekkert sjálfgefið að taka sigur þarna. Við fengum gott framlag frá þeim sem spiluðu í gærkvöld og Marvin átti virkilega góðan dag á báðum endum vallarins. Ungu strákarnir þrír, Dagur, Björn og Sæmundur komust virkilega vel frá sínu. Þetta er samt bara einn leikur, en vissulega er gott að byrja tímabilið á sigri," sagði Snorri en hvernig er útlitið með Jovan og Kjartan sem ekki eru alveg heilir þessi dægrin sökum meiðsla.
,,Vissulega munar um menn eins og Jovan og Kjartan, þeir eru góðir leikmenn báðir tveir. Það ánægjulega er þó að aðrir fylltu í skarðið í kvöld, en þannig er það hjá góðum liðum, þegar einhvern vantar eða er illa fyrir kallaður, þá geta aðrir fyllt í skarðið."