Tindastóll og Snæfell mættust í enn einum háspennuleiknum í vetur, en leikir liðanna í Lengjubikarnum í haust unnust með tveimur stigum og annar þeirra var framlengdur. Nú munaði enn minna því Snæfell marði eins stigs sigur eftir framlengingu í leik sem bauð upp á dramatískar lokamínútur bæði í venjulegum leiktíma og framlengingu.
Stólarnir tefldu fram nýjasta liðsmanni sínum Myles Luttman í byrjunarliði ásamt Miller, Helga Frey, Allen og Helga Rafni. Hjá gestunum byrjuðu Nonni, Sveinn, Pálmi, Hankins-Cole og Hall. Fyrstu mínútur leiksins virtust heimamenn alls ekki vera mættir, Snæfell skoraði fyrstu 10 stig leiksins og héldu síðan þægilegu forskoti út fyrsta leikhluta. Að honum loknum var staðan 17 – 24.
Óskar Hjartarson kom inn á byrjun annars leikhluta og smellti strax tveimur þristum fyrir gestina og munurinn 13 stig. Hann fór síðan mest í 16 stig í stöðunni 25 – 41. Þá loksins vaknaði smá líf hjá Stólum sem minnkuðu muninn jafnt og þétt fram að leikhléi. Staðan í hálfleik 36 – 42 og hefði getað verið minni því vítanýting Tindastólsmanna var arfaslök í öðrum leikhluta, þrjú af níu niður.
Lítið benti til þess að Stólarnir ætluðu að ógna gestunum eitthvað að ráði í síðari hálfleik. Ef heimamenn nálguðust Snæfell eitthvað þá spýttu þeir aðeins í lófana og juku muninn aftur. Næst komst Tindastóll í stöðunni 55 – 59, en gestirnir gáfu þá í og leiddu 59 – 71 í lok þriðja leikhluta. Nonni Mæju og Hankins-Cole voru atkvæðamiklir fyrir Snæfell á þessum kafla.
Spennan jókst ekkert í upphafi fjórða leikhluta, Snæfell bætti bara í og voru komnir í vænlega stöðu þegar rúmar fimm mínútur voru eftir, staðan þá 62 – 78. Þá tók Bárður leikhlé og breytti yfir í svæðisvörn í kjölfarið. Vörnin skellti í lás hjá Stólunum og þeir skoruðu næstu 13 stig án svars og fjölmargir áhorfendur tóku við sér og studdu heimamenn dyggilega á lokasprettinum. Það hjálpaði líka til að Nonni Mæju fékk sína fimmtu villu á þessum kafla. Staðan orðin 75 – 78 og tvær og hálf mínúta eftir og allt á suðupunkti í Síkinu. Hankins-Cole tróð í næstu sókn Snæfells, en þá var komið að þætti Friðriks Hreinssonar. Eftir misheppnaðar sóknir hjá báðum liðum tók hann sig til og smellti niður tveimur þristum í röð. Stólarnir komnir yfir í fyrsta sinn í leiknum 81 – 80 og örfáar sekúndur eftir. Hall tók boltann upp fyrir gestina og þegar 0,9 sekúndur voru eftir var brotið á honum við miðlínu og hann fékk tvö vítaskot. Fyrra skotið lak ofan í, en það seinna ekki og Tindastólsmönnum gafst ekki tími til neins og staðan jöfn 81 – 81 og framlenging næst á dagskrá.
Þar skoraði Snæfell fyrstu 4 stigin, en síðan kom góður sprettur hjá heimamönnum, skoruðu 9 – 2 á gestina og komust þremur stigum yfir 90 – 87. Hankins-Cole tók sig til þá og setti niður þrist og enn jafnt. Helgi Rafn kom Tindastóli í 94 – 92, en Hafþór svaraði fyrir Snæfell með erfiðum þristi. Í næstu sókn fékk Helgi Rafn sína fimmtu villu, en stuttu áður hafði Ólafur Snæfellsmaður farið sömu leið. Þegar rúmar 40 sekúndur voru eftir var staðan enn jöfn 97 – 97. Hankins-Cole hitti þá úr tveimur vítum fyrir Snæfell í næstu sókn og eftir mikinn barning krækti Þröstur Leó í tvö víti sem hann setti bæði niður og staðan 99 – 99. Snæfell fór í sókn þar sem brotið var á Óskari Hjartarsyni og nokkrar sekúndur eftir. Hann hitti aðeins úr því síðara og Stólarnir náðu frákastinu og brunuðu upp og virtust vera að tryggja sér sigurinn þegar Miller fór í troðslu, en þá var Hankins-Cole þar mættur og náði að verja skotið og um leið rann leiktíminn út og Snæfellsmenn fögnuðu líkt og þeir hefðu orðið Íslandsmeistarar, enda sætur sigur í dramatískum leik. Lokatölur 99 – 100.
Svona eftirá má segja að Snæfell hafi frekar átt sigurinn skilið, þeir spiluðu betur í heildina, en frábær sprettur heimamanna í lok fjórða leikhluta setti heldur betur spennu í leikinn og voru Stólarnir grátlega nálægt því að stela sigrinum þar. Hinsvegar bauð þessi leikur upp á allt það besta í körfuboltanum, spennu, baráttu, erfiðar þriggja stiga körfur, troðslur og umdeilda dóma eins og svo oft áður þegar þessi lið mætast.
Bestur Tindastólsmanna var Maurice Miller með þrefalda tvennu, 19 stig, 11 fráköst og jafnmargar stoðsendingar. Helgi Rafn var stigahæstur með 22 stig og Curtis Allen skilaði 19 stigum. Eftir slakan leik framan af náðist baráttan í gang í fjórða leikhluta þar sem allir lögðu sitt að mörkum og sárt að ná ekki að vinna leikinn. Ef vítanýtingin hefði verið örlítið betri er aldrei að vita hvernig hefði farið því aðeins 17 af 28 fóru niður.
Hjá gestunum í Snæfelli átti Hankins-Cole mjög góðan leik með 26 stig og 11 fráköst og þá var Nonni Mæju heitur á meðan hans naut við.
Stigaskor Tindastóls: Helgi Rafn 22, Miller 19, Allen 19, Rikki 14, Þröstur 11, Svavar 10, Hreinn 2 og Luttman 2.
Snæfell: Quincy Hankins-Cole 26, Jón Ólafur 24, Sheldon Hall 15, Óskar 9, Hafþór 9, Pálmi 8, Ólafur 7 og Sveinn 2.
Dómarar: Kristinn Óskarsson og Einar Þór Skarphéðinsson.
Mynd/ Óskar Hjartarson gerði sigurstig Snæfells í kvöld en hann er nýkominn í raðir Hólmara frá Mostra í 2. deild karla.
Texti: JS




