HomeFréttirSnæfell sigraði Fjölni í Hólminum

Snæfell sigraði Fjölni í Hólminum

 

Snæfell og Fjölnir mættust í síðari leik tvíhöfðans í Hólminum. Fyrir leik voru liðin á nokkuð svipuðum slóðum í deildinni Snæfell í því þriðja með 14 stig og Fjölnir í sjötta með 10 stig. Það var því hægt að búast við flottum leik á sunnudags eftirmiðdegi í Hólminum.

 

Þáttaskil

Heimamenn í Snæfell mættu virkilega einbeittir til leiks og virtust vera á meiri hraða heldur en gestirnir í byrjun. Eins og gengur og gerist þá jafnaðist 1. leikhlutinn og Snæfell leiddu með fimm stigum eftir fjórðunginn. Það var í raun í öðrum leikhluta sem Snæfell eignaði sér leikinn og virtust vera staðráðnir í því að keyra yfir gestina frá Grafarvogi. Leikurinn spilaðist eins í síðari hálfleik, eftir 25 mínútna leik var munurinn orðinn 27 stig fyrir heimamönnum. Þjálfari Fjölnis spurði þá leikmenn sína hvort þeir ætluðu að sýna smá ákefð og nenna að spila leikinn. Varnarleikurinn hjá þeim var vægast sagt slappur oft á tíðum og fengu heimamenn mikið að opnum sniðskotum eftir góð gegnum brot.

 

Hitinn

Það voru tveir leikmenn í liði gestanna sem sáu um sóknarleik liðsins. Sá allra heitasti var Sigvaldi Eggertsson, oft á tíðum dugði honum að kasta boltanum upp og hann skilaði sér rétta leið. Sigvaldi endaði leikinn með 31 stig 6/8 í þristum. Frábært efni hér á ferð og verður gaman að fylgjast með honum í framtíðinni. Hjá Snæfell er Christian Covile allt í öllu. Hann getur sett sig í hvaða líki sem er og skilar því ávallt með bros á vör. Covile endaði leikinn með 27 og 62% skotnýtingu í opnum leik. Samuel Prescott Jr. var atkvæðamesti leikmaðurinn á vellinum með 36 stig en hann þurfti töluvert fleiri skot en þeir fyrr nefndu, skotnýting hans var 38% í opnum leik.

 

Það þarf að klára leikinn

Hólmarar sýndu það eins og nokkrum sinnum í vetur að leikgleðin og baráttan í liðinu skiptir öllu fyrir liðið. Þeir spiluðu frábærlega á köflum og virtist það koma gestunum á óvart. Snæfellingar voru vel að sigrinum komnir og má segja að þeir hafi klárað leikinn á fyrstu 25 mínútum leiksins. Það voru allir að leggja í púkkið og hafa margir leikmenn liðsins verið að skila góðum tölum fyrir liðið. Leikurinn endaði með 15 stiga sigri Snæfells 100 – 85 og fengu ungir og efnilegir leikmenn að spila góðan part af 4. leikhluta.

 

Staðan eftir leikinn

Hólmarar setjast í annað sæti deildarinnar og skilja Fjölni eftir í því sjötta. Fram að jólum eiga gestirnir tvo leiki á móti Breiðablik og Vestra. Hólmarar eiga hins vegar einn leik eftir og er hann spilaður 8. desember í Hveragerði (Hamar gerði sér lítið fyrir og unnu topplið Skallagríms í Borgarnesi í kvöld). Það má því segja að 1. deildin heldur áfram að vera æsispennandi fram að jólum.

 

Tölfræði leiks

Myndasafn

 

Fréttir
- Auglýsing -