Keflavík vann kanalaust KR liðið 56-66 í Vesturbænum. Pálína Gunnlaugsdóttir setti niður 17 stig og tók 5 fráköst og Bryndís Guðmundsdóttir var með 15 stig, 10 fráköst, 5 stoðsendingar og 4 varin skot.
Hjá KR var Sigrún Ámundadóttir með 18 stig, 9 fráköst og 5 stolna bolta og Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir bætti við 16 stigum og tók einnig 9 fráköst.
Snæfell og Keflavík áfram í undanúrslit
Tveir leikir fóru fram í 8-liða úrslitum Poweradebikars kvenna í dag en Þór Ak. tók á móti Snæfelli á Akureyri og KR fékk Keflavík til sín í Vesturbæinn.
Snæfell átti ekki í miklum erfiðleikum með lið Þórs og unnu 27-104 þar sem að Alda Leif Jónsdóttir var með 20 stig og 6 fráköst. Rósa Indriðadóttir bætti við 18 stigum og Kieraah Marlow var með 17.
Hjá Þór var Rut Konráðsdóttir með 9 punkta og Erna Rún Magnúsdóttir með 4.




