Snæfell byrjaði leikinn af krafti og komst í 0-7 áður en Valur náði að skora sín fyrstu stig eftir tæplega þrjár mínútur. Gestirnir voru að spila virkilega góða vörn, komu hönd í hvern bolta sem þær gátu og tókst þannig að gera Val mjög erfitt fyrir. Ágúst Björgvinsson tók svo leikhlé fyrir Val stuttu seinna í stöðunni 2-9. Snæfell gaf ekkert eftir og náðu forskotinu upp í 8 stig fljótlega í seinni hluta fyrsta leikhluta, 6-14, og virtust svo hreinlega ætla að stinga af þegar leið á leikhlutan. Snæfell hafði skorað 19 stig gegn 6 stigum Vals þegar tvær mínútur voru eftir af fyrsta leikhluta en leikur þeirra virtist ganga fullkomnlega upp. Það var fyrst þá sem Valur mætti loks til leiks því á síðustu tveimur mínútunum skoruðu þær 7 stig gegn engu stigi gestana og það munaði því aðeins 6 stigum eftir fyrsta leikhluta, 13-19.
Valsstúlkur byrjuðu annan leikhluta af sama krafti og munurinn var kominn niður í 3 stig, 16-19, strax eftir um það bil mínútu af leik. Ingi Þór, þjálfari Snæfells var fljótur að bregðast við, setti Berglindi og Hildi aftur inná sem gjörbreytti leik Snæfells til hins betra. Gestirnir voru strax komnir aftur í 9 stiga forskot þegar rúmlegar þrjár mínútur voru liðnar, 18-27. Valur tók þá sitt annað leikhlé þegar annar leikhluti var tæplega hálfnaður. Aftur tókst Val þó að svara og höfðu náð að minnka muninn niður í 6 stig um 3 mínútum seinna, 25-31. Snæfell hleypti þeim þó ekki nær en það og höfðu 7 stiga forskot þegar gengið var til klefa í hálfleik, 30-37.
Stigahæst í liði Snæfells í hálfleik var Kieraah Marlow með 14 stig og 8 fráköst en næstar voru Berglind Gunnarsdóttir með 9 stig og Hildur Sigurðardóttir með 4 stig, 5 fráköst og 5 stoðsendingar. Hjá Val var Unnur Ásgeirsdóttir með 7 stig og 4 fráköst en næstar voru Alberta Auguste og Kristrún Sigurjónsdóttir með 6 stig hvor.
Kristrún og Ragna Margrét voru báðar búnar að næla sér í þrjár villur strax í upphafi seinni hálfleiks en þær byrjuðu báðar leikinn fyrir Val. Hildur Sigurðardóttir lék sama leik eftir stuttu seinna og náði í sína þriðju villu. Upphaf seinni háflleiks einkenndist af baráttu og sterkum varnarleik. Hvorugu liðinu tókst að komast á eitthvað flug og munaði því lengst af 7 stigum á liðunum. Þegar þriðji leikhluti var hálfnaður höfðin liðin aðeins skorað 8 stig samanlagt í leikhlutanum og þau skiptust jafnt á liðin, 34-41. Hlutirnir fóru hins vegar að detta hjá gestunum þegar leið á leikhlutan og höfðu þær náð 10 stiga forskoti 36-46 þegar hálf mínúta var eftir af leiknum. Alberta Augustine náði að minnka þann mun um 2 stig fyrir Val áður en þriðja leikhluta lauk, 38-46.
Valur byrjaði fjórða leikhluta vel og höfðu minnkað muninn niður í 4 stig, 42-46 þegar tvær mínútur voru liðnar. Kieraah Marlow hafði þá náð sér í tæknivillu og virtist vera farin að láta dómarana fara í taugarnar á sér. Alda Leif Jónsdóttir var hins vegar ekki á því að hleypa Val inní leikinn og setti þrist stuttu seinna, 44-49. Berglind Gunnarsdóttir setti svo næstu þrjú stig leiksins og forskot Snæfells var aftur komið í 8 stig, 44-52. Hildur Björg Kjartansdóttir setti svo sniðskotið niður í hraðaupphlaupi eftir að Marlow stal boltanum og 10 stigum undir tók Ágúst Björgvinsson leikhlé fyrir Val, 44-54, og 6 mínútur eftir af leiknum. Eftir það var sigur gestana í raun aldrei í hættu, sóknarleikur Vals var bitlaus og Snæfell nýtti sér hver mistök Vals til þess að auka muninn. Þegar þrjár mínútur voru til leiksloka tók Valur leikhlé en þá var forskot gestana 12 stig, 44-56. Snæfell setti þá algjörlega í lás í vörninni, stálu hverjum boltanum á fætur öðrum og juku muninn upp í 20 stig, 44-64 áður en Valur náði að svara. Það var því öruggur sigru Snæfells að Hlíðarenda í kvöld, 48-64.
Umfjöllun: [email protected]
Mynd: Þorsteinn Eyþórsson





