Fjórir leikir fóru fram í 16 liða úrslitum EuroBasket í Tyrklandi. Úrslitin nokkuð eftir bókinni þar sem að Slóvenía og Ítalía komust áfram. Það kom eilítið meira á óvart, miðað við gengi á mótinu hingað til, að Grikkland hafi unnið Litháen og sérstaklega þá að Þýskaland hafi unnið Frakkland, en það er í fyrsta skipti í 20 ár sem að þeir verða ekki með í 8 liða úrslitum mótsins.
Á morgun verða svo seinni fjórir leikir 16 liða úrslitanna. Þar munu mætast Lettland og Svartfjallaland, Serbía og Ungverjaland, Spánn og Tyrkland, svo síðast Króatía og Rússland.
Allir leikir morgundagsins verða í beinni útsendingu á RÚV eða RÚV2, en frekar má skoða dagskrána hér.
Úrslit:
Slóvenía 79 – 55 Úkraína
Þýskaland 84 – 81 Frakkland
Finnland 57 – 70 Ítalía
Litháen 64 – 77 Grikkland
Hérna er meira um úrslit dagsins




