HomeFréttirSkallagrímur lagði Grindavík B í Borgarnesi

Skallagrímur lagði Grindavík B í Borgarnesi

 
Skallgrímur vann í gær B lið Grindavíkur 86-72 í lokaumferð fyrst deildar kvenna. Borgnesingar byrjuðu leikinn á ákafri pressuvörn sem skilaði þeim fljótt tíu stiga forskoti. Þar með var grunnurinn að sigrinum lagður því heimastúlkur höfðu þægilegt 10-20 stiga forskot allan leikinn.
Hvenær sem Grindvíkingar gerðu sig líklega til að koma sér aftur inn í leikinn skiptu Borgfirðingarnir yfir í pressuvörn og stungu af á ný. Leikurinn skipti Grindvíkinga litlu máli en kvöldið fyrir leik var sigri þeirra á deildarmeisturum Stjörnunnar snúið upp í 0-20 tap þar sem Grindavíkur-liðið notaði ólöglegan leikmann.
 
 
Ljósmynd með frétt og texti: GG
Fréttir
- Auglýsing -