Körfuknattleiksfélag Akranes hefur samið við Terrence Watson um að verða spilandi þjálfari í átökum nýliðanna í 1.deildinni í vetur en liðið verður að öðru leiti byggt upp á heimamönnum. Terrence spilaði með Ball State háskólanum í Bandaríkjunum og skoraði 8,6 stig að meðaltali, tók 6 fráköst auk þess að blokka 1,5 skot í leik. Á síðasta tímabili lék Terrence svo með Quebec Kebs í PBL í Kanada og skoraði 22,1 stig, tók 8 fráköst og blokkaði 2 skot. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skagamönnum.
Mikil ánægja er innan KFA með komu Terrence og mikil spennan fyrir komandi tímabili.
Sagan segir að það verði öllu til tjaldað hjá Skagamönnum í vetur þar sem troðslur og blokkir koma á daginn og er stefnan að fylla Jaðarsbakkana á heimaleikjum liðsins í vetur.
ÍA leikur sinn fyrsta leik annað kvöld á móti Þór Akureyri og fer leikurinn fram fyrir norðan kl. 19.15.
Mynd/ Spilandi þjálfari ÍA, Terrence Watson




