spot_img
HomeFréttirSjötti Íslendingurinn til að skora 30 stig í bikarúrslitaleik

Sjötti Íslendingurinn til að skora 30 stig í bikarúrslitaleik

06:00

{mosimage}

Snæfellingurinn Sigurður Þorvaldsson skoraði 30 stig í 109-86 sigri Snæfells á Fjölni í bikarúrslitaleik Lýsingarbikars karla í dag og varð þar með aðeins sjötti Íslendingurinn í 39 ára sögu bikarúrslitaleiksins til þess að brjóta 30 stiga múrinn. Frá þessu er greint á vef Körfuknattleikssambandsins – www.kki.is.


Sigurður var ennfremur fyrsti íslenski leikmaðurinn í 14 ár sem nær að skora 30 stig í bikaúrslitaleik en síðastur til þess á undan honum var Njarðvíkingurinn Teitur Örlygsson sem náði því í tapleik árið 1994. Sigurði vantaði hinsvegar enn fimmtán stig upp á að jafna stigamet Vals Ingimundarsonar sem skoraði 45 stig í úrslitaleiknum fyrir tuttugu árum síðan.

Flest stig Íslendings í bikarúrslitaleik karla:
45 – Valur Ingimundarson, Njarðvík (gegn KR 1988, sigur)
38 – Teitur Örlygsson, Njarðvík (gegn Keflavík 1994, tap)
37 – Guðni Guðnason, KR (gegn Njarðvík 1988, tap)
31 – Kolbeinn Pálsson, KR (gegn ÍR 1972, sigur)
30 – Jón Sigurðsson, Ármanni (gegn Njarðvík 1976, sigur)
30 – Sigurður Þorvaldsson, Snæfelli (gegn Fjölni 2008, sigur)

Skipting stiga Sigurðar Þorvaldssonar í úrslitaleiknum 2008:
Í 1. leikhuta 11
Í 2. leikhuta 3
Í 3. leikhuta 14
Í 4. leikhuta 2
Í fyrri hálfleik 14
Í seinni hálfleik 16
——————–
Stig úr teig 6
Stig utan teigs 0
Stig úr þriggja stiga skotum 21
Stig af vítalínunni 1
Stig úr hraðaupphlaupum 2

www.kki.is

Mynd: [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -