HomeFréttirSigurður Gunnar mærður á superbasket.gr

Sigurður Gunnar mærður á superbasket.gr

Sigurður Gunnar Þorsteinsson og félagar í Doxa Pefkon (12) unnu góðan og mikilvægan sigur á liði Panerythraikos (7) um síðastliðna helgi þar sem Sigurður átti flottan leik. Hann skilaði af sér 13 stigum og 8 fráköstum í 78-58 sigri og þar með skrúfaði Doxa fyrir tapleikjahrinuna sem þeir voru í fyrir þennan leik.

Sigurður hefur vakið verðskuldaða athygli á Grikklandi og í umfjöllum á superbasket.gr er hann mærðu í hástert. Þar kemur fram að þjálfari Doxa hafi „gamblað“ með því að taka Sigurð en hans 12 stig, 7,4 fráköst og 1,8 stoðsending í kringum körfuna geri gæfu muninn.

Þar kemur jafnframt fram að Ísland sé ekki stórt númer í körfuboltaheiminum og að Doxa  hafi tekið vissa áhættu með því að fá hann inn en í þessu tilfelli hafi Doxa tekið rétta ákvörðun og fundið nákvæmlega það sem þeim vantaði.

Doxa situr sem áður í 12 sæti deildarinnar með 5 sigra og 10 töp en þessi sigur gerir þá líklegri til að sleppa við umspil um fall. Miðað við spilamennsku liðsins í leiknum gegn Panerythraikos eru þeir staðráðnir í að falla ekki í þann pitt að þurfa að halda lífi sínu í deildinni.

27. febrúar mæta Siggi og félagar liði Livadia sem situr í áttunda sæti deildarinnar og spennandi verður að sjá hvort að þeir nái að fylgja eftir þessum flotta leik gegn Panerythraikos.

Fréttir
- Auglýsing -