Sigur hafðist eftir háspennuleik í gær þegar HK og Reynir Sandgerði mættust í 2. deild karla og með þessum sigri opnaðist riðillinn heldur betur og núna er möguleikarnir ýmsir fyrir úrslitakeppnina sem fram undan er. Staðan í riðlinum er sú að HK er á toppnum með 24 stig en 5 stig í plús á Sandgerðinga sem eru líka með 24 stig.
ÍBV kemur síðan með 22 stig og á tvo leiki til góða á Reyni. Þeir eru með 17 stig í plús á HK og 2 stig í plús á Reyni en lokaleikur riðilsins hjá Reyni er í Eyjum. Þaning að allt er í járnum fyrir lokaátökin en Eyjamenn standa best að vígi fyrir lokaátökin.
En aftur að leiknum í gær. Leikurinn fór af stað með látum og frábær byrjun Sandgerðinga kom HK í opna skjöldu. Rúnar Pálsson var duglegur að finna Helga sem var sjóðheitur í fyrsta fjórðung með 4 þrista. Staðan eftir um sjö mínútna leik 7-23. En gömlu jálkarnir í HK eru ýmsu vanir og gáfust ekki upp og komu til baka og minnkuðu muninn í 22-27 fyrir annan fjórðung.
Annar fjórungur var í járnum til að byrja með en HK hélt áfram að hamra járnið og náði að vinna fjórðunginn 23-14 og leiða í hálfleik 45-41. Þriðji leikhluti fór á nánast sömu leið en núna var stigaskorið Sandgerðingum í hag 12-24 og munurinn fyrir lokaleikhlutann því 8 stig 57-65. Í þessum leikhluta voru það bakverðir Reynis sem sáu um að ógna HK með gegnumbrotum og uppskáru eftir því margar villur á HK. Samtals fóru Reynismenn menn 16 sinnum á vítalínuna í þriðja leikhluta.
Fjórði leikhluti fór af stað með 7 stigum hjá HK og munurinn orðinn eitt stig eftir 2 mínútur tæpar. Áfram hélt baráttan en frumkvæðið var Reynismanna og það var ekki fyrr en rúmar þrjár mínútur voru eftir að góður kafli með sex stigum í röð kom þeim yfir 72-78 að Sandgerðingar fóru að sjá möguleika á sigri. En hlutirnir gerast hratt í körfubolta og því ekkert öruggt í þeim efnum. Það fór síðan á þann veg að góður þristur hjá Reyni sem innsiglaði sigur á HK og um leið áframhaldandi sigra á útivelli í vetur.
Tölur sem sáust í leiknum 0-2 , 6-17 , 7-23 , 11-25 , (22-27) 27-29 , 33-31 , 33-34 , 37-37 , 41-39 , (45-41) 45-51 , 47-54 , 49-62 , 55-63 , (57-65) 64-65 , 68-69 , 72-72 , 72-78 , 73-80 , 76-80 ,lokastaða 78 – 83.





