spot_img
HomeFréttirSigur á San Marino

Sigur á San Marino

7:20

{mosimage}

Ísland sigraði í dag San Marinó á Smáþjóðaleikunum í Mónakó. Íslenska liðið er því búið að sigra alla fjóra leiki sína á mótinu og mætir Kýpur í úrslitaleik á morgun.

Þetta var erfiðasti leikur liðsins til þessa á mótinu en liðsmenn San Marinó léku af miklum krafti í byrjun og voru yfir í hálfleik 48-36.

Íslenska liðið kom þó mikið betur stemmt í seinni hálfleikinn og náði að vinna muninn upp í þriðja leikhluta. Skytturnar okkar fóru að hitta betur úr þriggja stiga skotum sínum og meiri barátta var í liðinu.

Í fjórða leikhluta seig Ísland svo fram úr og náði að knýja fram góðan sigur 92-81.

Stigaskor Íslendinganna í leiknum:

Páll Axel Vilbergsson 22
Logi Gunnarsson 21
Brenton Birmingham 19
Friðrik Stefánsson 15
Magnús Þór Gunnarsson 10
Helgi Már Magnússon 5

Á morgun klukkan 13:00 mætir Ísland svo liði Kýpur. Kýpur hefur farið með sigur af hólmi síðustu árin en strákarnir eru staðráðnir í að sigra þá og koma heim með gullið í ár.

 

www.kki.is

 

Mynd: vf.is

 

 

Fréttir
- Auglýsing -