HomeFréttirSherrod Wright til Hauka

Sherrod Wright til Hauka

Haukar ríða á vaðið í útlendingamálum karla megin en þeir hafa ákveððið að senda Aaron Brown heim og hafa samið við Sherrod Nigel Wright til að taka við af honum.

Sherrod Wright spilaði með liði Snæfells á síðasta tímabili og átti frábært tímabil með þeim. Hann var stigahæsti leikmaður Domino's deildarinnar á síðasta tímabili með rúm 28 stig að meðaltali í leik og með frábæra nýtingu, 57% 2ja stiga nýtingu, 37% 3ja stiga nýtingu og 81% vítanýtingu.

Á heimasíðu Hauka kemur fram að þeir hafa auk þess rift samning við Aaron Brown en hann þótti ekki standa undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar fyrir tímabilið og hefur liðið strögglað í fyrstu leikjum tímabilsins.

Næsti leikur er við Íslandsmeistara KR á föstudaginn í Schenkerhöllinni og er ljóst að Haukar munu spila án erlends leikmanns í þeim leik en Wright verður að öllum líkindum kominn strax eftir helgi.

Fréttir
- Auglýsing -