Mánaðarlega mun Karfan birta kraftröðun í vetur. Þar er ekki aðeins tekin til staða liðanna í deildinni, heldur einnig breytingar á leikmannahópum og það gengi, eða sú sveifla sem liðið er í á hverri stundu.
Riðið er á vaðið með Dominos deild karla. Það sem horft er til í þessari fyrstu útgáfu er breyting á leikmannahópum liðanna, en ekki er tekið sérstakt tillit til æfingaleikja sem liðin hafa spilað í þetta skiptið, nema að litlu leyti.
Örvarnar munu á næsta lista merkja færslu liða á milli mánaða, en þar sem þetta er fyrsti sinnar tegundar, þá eru þær miðaðar við endanlega stöðu liðs í deildinni á síðasta tímabili.
#1:


Þó KR séu meistarar síðustu fjögurra ára, þá hefur þeim ekkert verið gefið. Sáum það í úrslitkeppninni í fyrra. Gerðu að okkar mati lítið annað en að styrkjast yfir sumarið, en þó þeir missi sterka leikmenn í þeim Snorra og Þóri, þá eru viðbæturnar, Kristófer og Björn, virkilega sterkar. Hvað erlendu leikmannaskiptin varðar, þá er það eitthvað sem á eftir að koma í ljós. KR er besta lið á landinu þangað til við komumst að öðru
Komnir
Björn Kristjánsson frá Njarðvík
Kristófer Acox frá Furman
Jalen Jenkins frá George Mason háskólanum
Farnir
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson – Nebraska Huskers
Snorri Hrafnkelsson til Þór Þ.
PJ Alawoya til Andrézieux (Frakklandi)
#2:


Sauðkrækingar hafa tvímælalaust styrkt liðið frá síðasta tímabili. Axel Kára er kominn heim en þar kemur reynsla og ró sem liðinu hefur vantað á stórum augnablikum. Einnig er Sigtryggur Arnar mættur eftir frábært landsliðssumar. Tindastóll missti lítið og eru klárlega líklegt í toppbaráttu vetrarins.
Komnir
Axel Kárason frá Svendborg Rabbits (Danmörk)
Sigtryggur Arnar Björnsson frá Skallagrím
Anthonio Hester áfram
Farnir
Pálmi Geir Jónsson til Þór Ak.
#3:


Misstu í sumar tvær aðalástæður þess að þeir fóru jafn langt og þeir gerðu í úrslitakeppninni í fyrra í Clinch og Þorleifi. Fá vissulega einn stærsta bita þessa sumars inn heim úr atvinnumennsku með Sigurði. Það lið sem kom mest á óvart í fyrra og við höldum að þeir eigi eftir að fylgja því eftir með þann hóp sem þeir eru með í höndunum.
Komnir
Sigurður Gunnar Þorsteinsson frá Grikklandi
Jóhann Árni Ólafsson frá Njarðvík
Hinrik Guðbjartsson frá Vestra
Rashad Whack frá Sviss
Farnir
Þorleifur Ólafsson hættur
Lewis Clinch Jr. óvíst
#4:


Gríðarlega mikilvægir póstar í liðinu hafa farið í sumar í Justin Shouse og Tómasi Heiðari. Besti leikmaður 1. deildarinnar á að taka hlutverk Shouse í liðinu en hann er óskrifað blað í efstu deild. Liðið er enn fullt af spurningamerkjum og þá sérstaklega eftir vonbrigði síðasta tímabils. En það er bara eitt eintak af Hlyn Bæringssyni og það er í Stjörnunni.
Komnir
Róbert Sigurðsson frá Fjölni
Colin Pryor frá Fjölni
Bjarni Geir Gunnarsson frá Breiðablik
Viktor Marínó Alexandersson frá Snæfell (Á venslasamning)
Farnir
Anthony Odunsi
Sæmundur Valdimarsson til Breiðabliks
Justin Shouse hættur
Tómas Heiðar Tómasson hættur
#5:


Keflavík missir tvo af allra bestu leikmönnum deildarinnar þetta sumarið í Herði og Amin. Gerðu þó vel í að ná í Ragnar, heimamennina Þröst og Sigurþór, sem og hinn gífurlega efnilega Hilmar. Margar spurningar, en við höldum að með jafn sjóaðan þjálfara og Friðrik Ingi er, þá verði þeir fljótir að finna svörin.
Komnir
Ragnar Örn Bragason frá Þór Þ
Þröstur Leó Jóhannsson frá Þór Ak
Sigurþór Ingi Sigurþórsson frá Bærum (Noregi)
Kevin Young frá Puerto Rico
Hilmar Pétursson frá Haukum
Farnir
Hörður Axel Vilhjálmsson til Astana (Kasakstan)
Amin Stevens til Rouen (Frakklandi)
#6:


Skellur síðasta tímabils situr enn í mönnum í Njarðvíkinni. Miklar breytingar hafa orðið á liðinu í sumar og lítur út fyrir að jafnvægi liðsins sé mun betra. Raggi Nat gerir gæfumuninn en hæð hans hefur áhrif á leikstíl Njarðvíkur og andstæðings þeirra í öllum leikjum. Macjiej er kominn heim eftir frábært tímabil í Þorlákshöfn. Óvíst hvernig liðið mun koma inní tímabil eftir tímabil en spennandi hlutir í gangi í Njarðvík.
Komnir
Ragnar Nathanelsson frá Spáni
Brynjar Þór Guðnason frá Reyni S.
Maciej Baginski frá Þór Þ .
Ragnar Helgi Friðriksson frá Þór Ak
Terrel Vinson frá Finnlandi
Farnir
Jóhann Árni Ólafsson til Grindavíkur
Stefan Bonneau óvíst
Adam Eiður Ásgeirsson til Þór Þ
Björn Kristjánsson til KR
Jeremy Atkinson óvíst
Myron Dempsey óvíst
#7:


Þór hefur oftar en ekki komið öllum á óvart. Kæmi okkur því ekki á óvart þó þeir ættu eftir að klifra eitthvað á þessum lista. Verður áhugavert að sjá erlendan leikmann þeirra, Pellot-Rosa, aftur í deildinni, en hann skilaði nokkrum ógleymanlegum frammistöðum þegar hann spilaði með Keflavík hér um árið. Mikill missir í þeim Ragnari og Maciej.
Komnir
Snorri Hrafnkelsson frá KR
Adam Eiður Ásgeirsson frá Njarðvík
Óli Ragnar Alexandersson frá Njarðvík/Snæfell?
Magnús Breki Þórðarson frá Vestra
Jesse Pellot-Rosa frá Argentínu
Farnir
Ragnar Örn Bragason til Keflavíkur
Maciej Baginski til Njarðvíkur
Tobin Carberry til Finnlands
#8:


Hafnfirðingar héldu kjarnanum frá vonbrigðum síðasta tímabils. Nýr erlendur leikmaður mun vonandi fyrir Hauka gera meira fyrir liðið og senda boltann á liðsfélaga reglulega. Fyrir tímabilið gerum við ráð fyrir að liðið hafi spilað undir pari á síðasta tímabili og muni spila nær sinni getu á komandi tímabili. Þá er spurning hvort Ívar skelli sér ekki í eina skíðaferð rétt fyrir tímabil til að byrja á réttum nótum.
Komnir
Roger Woods frá Austurríki
Farnir
Sherrod Wright óvíst
Cedrick Bowen til Búlgaríu
Sigurjón Unnar Ívarsson til FSu
Hilmar Pétursson til Keflavíkur
#9:


Það er ljótt að hafa ekki meiri trú á ÍR en þetta. Fyrir utan erlendan leikmann, þá halda þeir öllum. Sýndu okkur bara nákvæmlega ekkert í úrslitakeppninni í fyrra sem verðskuldar hærra sæti en þetta. Gerðu þó vel með að komast í hana á síðasta tímabili og við gerum ráð fyrir að þeir geri harða tlögu að henni aftur.
Komnir
Ryan Taylor frá Marshall University
Farnir
Stefán Karel Torfason hættur
Vilhjálmur Theodór Jónsson til Njarðvíkur
Quincy Hankins-Cole óvíst
#10:


Eftir sannfærandi frammistöðu á síðasta tímabili í 1. deild tókst liðinu að halda öllum leikmönnum og bæta við Andrée Michelsson sem sýndi fína takta í Stykkishólmi á síðasta tímabili. Liðið er reynslunni ríkari eftir síðustu dvöl í Dominos deildinni og eru með sterkari kjarna leikmanna nú.
Komnir
Andrée Michelsson frá Snæfell
Taylor Stafford frá WWU Vikings (USA)
Bergþór Ægir Ríkharðsson frá Fjölni
Farnir
Aaron Moss óvíst
#11:


Eins og staðan er nákvæmlega núna, þá er Valur að fara með 1. deildarlið sitt til keppni í Dominos deildinni. Voru reyndar eitt best mannaða liðið í 1. deildinni í fyrra, en það breytir því ekki að við höldum að þetta verði ansi þungur róður.
Komnir
Farnir
Ingimar Baldursson til Vestra
Urald King óvíst
#12:


Það er útlit fyrir erfiðan vetur á Akureyri. Þórsarar misstu heilt byrjunarlið í sumar og einungis tveir leikmenn eftir sem spiluðu meira en tvær mínútur að meðaltali í leik á síðasta tímabili. Liðinu hefur gengið illa að fá leikmenn og við teljum að þeir leikmenn sem komu séu ekki með nægileg gæði til að halda liðinu í efstu deild.
Komnir
Marquese Oliver frá Fjölni
Hreiðar Bjarki Vilhjálmsson frá Fjölni
Pálmi Geir Jónsson frá Tindastól
Farnir
Þröstur Leó Jóhannsson til Keflavíkur
Ragnar Helgi Friðriksson til Njarðvíkur
Tryggvi Snær Hlinason til Valencia (Spáni)
Darrel Keith Lewis óvíst
George Beamon til Bretlands




