HomeFréttirSeptember kraftröðun Karfan.is - 1. deild kvenna

September kraftröðun Karfan.is – 1. deild kvenna

 

Mánaðarlega mun Karfan birta kraftröðun í vetur. Þar er ekki aðeins tekin til staða liðanna í deildinni, heldur einnig breytingar á leikmannahópum og það gengi, eða sú sveifla sem liðið er í á hverri stundu.

 

Riðið var á vaðið með Domino‘s deildir karla og kvenna, en hér fyrir neðan er september útgáfan fyrir 1. deild kvenna. Það sem horft er til í þessari fyrstu útgáfu er breyting á leikmannahópum liðanna, en ekki er tekið sérstakt tillit til æfingaleikja sem liðin hafa spilað í þetta skiptið, nema að litlu leyti.

 

Örvarnar munu á næsta lista merkja færslu liða á milli mánaða, en þar sem þetta er fyrsti sinnar tegundar, þá eru þær miðaðar við endanlega stöðu liðs í deildinni á síðasta tímabili.

 

 

 

 

#1: Grindavík

 

 

Grindavík átti erfitt uppdráttar í Domino‘s deildinni í fyrra en hafa núna fengið erlendan leikmann, Angelu Rodriguez, sem mun sömuleiðis þjálfa liðið. Fólk dæmir fyrir sig sjálft hversu góð hugmynd spilandi þjálfari sé. Liðið hefur Emblu Kristínardóttur og ungar efnilegar stelpur sem hafa verið í unglingalandsliðum líka þannig að við teljum þetta besta liðið þar til annað kemur í ljós.

 

Komnar

Angela Rodriguez frá USA

Emelía Grétarsdóttir frá Njarðvík

 

Farnar

Hrund Skúladóttir til Njarðvíkur

Lovísa Falsdóttir til Breiðabliks

Belinda Berg Jónsdóttir til Þórs Akureyrar

 

 

#2: KR

 

 

KR-ingar rétt misstu af úrslitakeppni 1. deildar kvenna í fyrra og ætla sér upp á þessu ári. Benedikt Guðmundsson nýráðinn þjálfari þeirra mun vonandi hjálpa þeim þar ásamt öflugum ungum stelpum sem eru reynslumeiri í ár. Fyrst að erlendur leikmaður er ekki enn komin og óvíst hver hún verði munu KR-stelpur verma annað sætið í bili.

 

Komnar:

Unnur Tara Jónsdóttir

Erlendur leikmaður óráðinn

 

Farnar:

Ásta Júlía Grímsdóttir til Vals

Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir til Vals

Rannveig Ólafsdóttir í pásu

Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir í pásu

Jóhanna Rún Styrmisdóttir hætt

 

 

#3: Fjölnir

 

 

 

Fjölnisstúlkur áttu arfaslakt tímabil í fyrra og hafa í ofanálag misst nokkrar efnilegar úr liðinu. Þrátt fyrir að erlendur leikmaður þeirra líti vel út á blaði þá verða þær ekki ofar á listanum fyrr en hún mætir og sýnir hvað hún getur.

 

Komnar

McCalle Feller frá USA (ekki lent ennþá)

 

Farnar

Kristín María Matthíasardóttir til Vals

Fanney Ragnarsdóttir til Hauka

Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir til Skallagríms Friðmey Rut Hassing Ingadóttir til Breiðabliks

Eva María Emilsdóttir í pásu

 

 

#4: ÍR

 

 

Hið nýstofnaða kvennalið ÍR-inga er stútfullt af leikmönnum sem hafa komið úr öðrum liðum ásamt því að Ólafur Jónas Sigurðsson hefur tekið vel á þeim á undirbúningstímabilinu a la Bootcamp. Þó þær hafi ekki erlendan leikmann gætu þær valdið usla þegar þær hafa spilað sig betur saman. Fjórða sætið í bili.

 

Komnar

Snædís Birna Árnadóttir frá Breiðablik

Rannveig Bára Bjarnadóttir frá Breiðablik

Hlín Sveinsdóttir frá Breiðablik

Elín Kara Karlsdóttir frá Breiðablik

Jóhanna Herdís Sævarsdóttir frá Breiðablik

Katla Marín Stefánsdóttir frá Breiðablik

Kolbrún Grétarsdóttir frá Breiðablik

Hanna Þráinsdóttir frá Skallagrím

Sigurbjörg Rós Sigurðardóttir frá Skallagrím

Bryndís Gunnlaugsdóttir frá Stjörnunni

Guðrún Sif Unnarsdóttir frá Stjörnunni

Alexia Luneau frá Stjörnunni

Sigríður Antonsdóttir frá Stjörnunni

Hrafnhildur Magnúsdóttir frá Val

Nína Jenný Kristjánsdóttir frá Val

Guðrún Eydís Arnarsdóttir frá KR

 

Farnar

Á ekki við

 

 

#5: Hamar

 

 

 

Svo virðist sem góður hluti þeirra leikmanna sem skiluðu Hamri upp í úrvalsdeildina 2013 hafi hug á að koma aftur í Frystikistuna. Þær ásamt ungu stelpunum gætu staðið í efstu liðunum, en fyrst þurfum við að sjá það gerast. Fimmta sætið og sjáum til með framhaldið.

 

Komnar

Hálft liðið frá því árið 2013

 

Farnar

Íris Ásgeirsdóttir í barneignir

 

 

#6: Ármann

 

 

 

Ármenningar hafa endurvakið kvennaliðið sitt og þó að þær séu ungar og óreyndar gætu þær með hjálp nokkurra reyndra leikmanna náð einhverjum góðum leikjum. Verða þó ekki hærri en í sjötta sæti.

 

Komnar

Sigrún Guðný Karlsdóttir frá Stjörnunni

Bjarnfríður Magnúsdóttir frá FSu

 

Farnar

Á ekki við

 

 

#7: Þór Akureyri

 

 

Eftir að hafa naumlega misst af sæti í Domino‘s deild kvenna eftir tap í úrslitaeinvígi 1. deildar kvenna í fyrra gegn Breiðablik þá virðist botninn hafa dottið úr liðinu. Þór hefur misst 6 af 8 spilahæstu leikmönnum sína frá því í fyrra og botnsætið er þeirra þar til annað kemur í ljós.

 

Komnar

Belinda Berg Jónsdóttir frá Grindavík

 

Farnar

Unnur Lára Ásgeirsdóttir hætt

Rut Herner Konráðsdóttir hætt

Hrefna Ottósdóttir til Hauka

Thelma Hrund Tryggvadóttir

Fanney Lind G. Thomas til Skallagríms

Helga Rut Hallgrímsdóttir

Fréttir
- Auglýsing -