spot_img
HomeFréttirSara Rún Domino´s leikmaður umferða 1-3

Sara Rún Domino´s leikmaður umferða 1-3

Keflvíkingurinn Sara Rún Hinriksdóttir hefur verið útnefnd Domino´s leikmaður umferða 1-3 í Domino´s deild kvenna. Það voru lesendur Karfan.is sem kusu Söru Rún sem hlýtur í verðlaun Sparitilboð A hjá Domino´s en þar gefur að líta stóra pizzu af matseðli, 2L gos, stóran skammt af brauðstöngum og sósu.
 
Í fyrstu þremur deildarleikjunum með Keflavík sem situr á toppnum með Snæfell var Sara Rún með 18 stig, 10 fráköst og 1,7 stoðsendingu að meðaltali í leik. Jafnaðarframlag hennar á leik var 24,3 stig.
 
Karfan.is gerði sex leikmanna úrtak sem lesendur völdu úr og skiptust atkvæðin svo:
 
Sara Rún Hinriksdóttir – 32,18%
Lele Hardy – 30,56%
Hildur Björg Kjartansdóttir – 16,44%
Unnur Lára Ásgeirsdóttir – 10,88%
Alda Leif Jónsdóttir – 6,48%
Siarre Evans – 3,46% 
Fréttir
- Auglýsing -