spot_img
HomeFréttirSagt eftir leik í Hólminum: Ingi og Sverrir

Sagt eftir leik í Hólminum: Ingi og Sverrir

Sverrir Þór Sverrisson var að vonum sáttur við stigin tvö í gærkvöldi þegar Njarðvík lagði Snæfell og átti fyrirfram von á hörku útileik á erfiðum velli komandi úr leik þar sem hans lið var sem sykur í bensíntanka Keflavíkur sem hikstuðu rækilega. Með sigrinum fer Sverrir Þór með lið sitt í fyrtsa sætið og er mjög sáttur við það, allavega í sólahring hið minnsta. Fjórir sigurleikir í röð hjá Njarðvík sem eru að finna góðan takt.
,,Það er gaman að komast þangað í smátíma allavega, en leikurinn var ekki góður hjá okkur. Varnarlega var þetta nokkuð gott en sóknarlega var þetta mjög stirt og sem betur fer var Shanae Baker- Brice bara í miklu stuði og tók af skarið þegar það þurfti og hún bara kláraði þetta fyrir okkur.”
 
Erfitt að hvetja liði upp eftir Keflavíkurleikinn?
 
 
,,Ég bjóst við hörkuleik sem hann var og Snæfell er gott lið. Ég var smeykur eftir leikinn við Keflavík sem endaði með stórsigri okkar að það yrði erfitt fyrir þær að koma klárar í þennan leik þó þær ætluðu sér það þá getur alltaf verið smá værukærð. Það virtist þó ekki vera en sóknarlega mjög dapurt en góður sigur og sáttar við stigin.”
 
 
Ingi Þór Steinþórsson hefur stýrt liðinu taplausu í fimm leikjum á heimavelli í deildinni í vetur hingað til en tapleikur raunin og það með einungis þremur stigum sem segir að heimavígið er sterkt hjá Snæfellsstúkum en sárt tap hjá þeim í leiknum.
 
 
,,Þetta var mjög vont og sárt tap því mér fannst við eiga skilið að vinna þennan leik. Við vorum ítrekað að gera erfitt fyrir okkur sjálfum og töpum tveimur boltum og þær ná dýrmætum sóknarfráköstum í lokin. Shanae Baker kom hérna og hreinlega skeindi þeim hérna, þær (Njarðvík) voru ekkert að spila vel og við ekkert rosalega vel en hún var yfirburðamaður á vellinum.”
 
 
Það eru ekki auðveld tvö stig sem lið fá frá ykkur í Hólminum?
 
 
,,Nei, það er sama hvort liðin eru með tvo erlenda leikmenn eða hvað það er ekkert öruggt hérna og við gefum heimavöllin ekkert frá okkur en sárt að tapa þessu svona. Mér fannst við eiga meira skilið út úr leiknum þar sem stelpurnar standa sig vel baráttulega en við vorum bara klaufar í lokin þess vegna er þetta sárt sérstaklega og virkilega vont tap. Við dveljum ekkert við þennan leik heldur sýnum að við getum vel spilað á móti bestu liðunum þegar það gerist og ætlum að halda áfram.”
 
Mynd/ Þorsteinn Eyþórsson
Viðtal/ Símon B. Hjaltalín  
Fréttir
- Auglýsing -