Þjálfarar liðanna voru að sjálfsögðu misbrattir eftir slíkan leik sem Snæfell – ÍR var í kvöld þar sem Snæfell sigraði 96-77. Steinar Arason sem stjórnaði ÍR-liðinu í fjarveru Jóns Arnars sagði að hann hefði verið ánægður með liði í upphafi en að leikur liðsins hafi riðlast verulega eftir að D´Andre hafi spilað lítið í öðrum og þriðja hluta vegna villuvandræða.
,,Hann [innsk. blm: D´Andre] stýrir sóknarleiknum hjá okkur og er leiðtogi en í þriðja hluta mættum við bara alls ekki til leiks, skelfilega flatir, spilum ekki kerfin og þeir rúlla okkur upp í fráköstum. Það vantaði svo bara marga til að stíga upp í kvöld hjá okkur.”
Ekki er annað hægt að segja en að ÍR sé þokkalega mannað lið og varla þetta sem koma skal hjá Breiðhyltingum?
,,Við erum bara fínt lið og vorum með sjálfstraust fyrir leikinn og ætluðum að ná hérna í tvö stig. Við erum með þéttan hóp og kannski erfitt þegar annar kaninn spilar lítið eftir fjórðu villuna strax í seinni hálfleik og svo fimmtu í lok þriðja hluta og vantaði fleiri til að stíga upp.”
Það var eins og Snæfellingar hefðu ekki mætt í húsið í fyrsta hluta með fjöldann af slökum sendingum, ráðvilltum sóknum og lélegri vörn og Ingi Þór þjálfari Snæfells tók undir það.
,,Við komum of flatir til leiks og náðum aldrei að fylgja þeirra byrjun en um leið og við náðum að kveikja aðeins í okkur og fá þetta stopp þá fengum við smjörþefinn af þessu sem lá meiraí öðrum hluta en í þriðja hluta vinnum við 28-8 og við lögðum grunninn þar og náðum að spila okkar leik þar. Haffi, Óli og Stefán voru að koma með hörkubaráttu af bekknum og það sýnir breiddina og ég er mjög ánægður með að hafa komi til baka og sigrað hér í fyrsta leik eftir flata byrjun.”
Mynd/Úr safni
Símon B. Hjaltalín





