Bakvörðurinn Jordan Farmar er að ganga til liðs við L.A. Lakers á nýjan leik en hann lék með tyrkneska stórveldinu Anadolu Efes síðast liðið tímabil. Farmar sem lék með Lakers á árunum 2006-2010 fékk sig lausan frá tyrkneska liðinu en hann átti tvö ár eftir af samningnum.
Farmar sagði að hans markmið væri alltaf að koma aftur í NBA og hann gerir það með stíl þetta sumarið. Eins og allir vita er mjög vel borgað í Evrópu en hann skrifaði undir 10.5 milljón dollara samning til þriggja ára síðasta sumar og var hann því eingöngu búinn með eitt ár af þeim samning. Farmar átti að fá greiddar um sjö milljónir dollara á næstu tveimur árum. En nú semur hann við Lakers aðeins til eins árs fyrir aðeins miljón dollara.
Lakers kaupir hann á 500 þúsund dollara. Farmar sem er uppalinn í Los Angeles og fór í UCLA háskólann lék með Lakers á árunum 2006-10 og var meistari með þeim 2009 og 2010.
Mynd: Jordan Farmar er til í að taka á sig launalækkun til að spila með Lakers.




