Li-Ning Way of Wade Dlo 2 er annar signature skór körfuboltastjörnunnar D’Angelo Russell hjá hinu gríðarlega vinsæla merki Li-Ning. Skórinn er hannaður fyrir leikmenn sem vilja létta skó sem henta fyrir hraðar stefnubreytingar og góða stjórn á vellinum.
Tækni og eiginleikar
Allar útgáfur skósins byggja á sömu öflugu tækninni sem gerir hann að einum af vinsælustu skóm hjá Li-Ning:
- BOOM-dempun: Miðsólinn skartar hinu létta BOOM-froðuefni sem skilar hámarks endurgjöf (e. energy return) og mýkir allar lendingar án þess að þyngja skóinn.
- PROBAR LOC stöðugleiki: Innbyggð stuðningsplata í miðhluta sóla kemur í veg fyrir óæskilegan snúning á fætinum við snöggar hreyfingar.
- Öndun og stuðningur: Létt netefni í yfirbyggingu heldur fætinum vel læstum niðri og tryggir góða öndun.
- Grip: Slitsterkt gúmmímynstur undir sólanum tryggir áreiðanlegt grip á parketinu.
Útgáfur í boði
Li-Ning Way of Wade Dlo 2 – Mentor’s Mark Mentor’s Mark útgáfan er hugsuð sem virðingarvottur við þá þjálfara, leiðbeinendur og reynslubolta sem hafa mótað D’Angelo Russell, bæði sem leikmann og manneskju, frá því hann var ungur að árum. Á skónum má sjá snák og klassísku litina sem Kobe Bryant notaði oft í sínum skóm, en mögulega hefur þessi útgáfa sótt innblástur beint til hans.

Li-Ning Way of Wade Dlo 2 – Friendly Neighbor Friendly Neighbor útgáfan sækir innblástur í poppmenningu (e. pop culture) og má greinilega sjá vísun í Köngulóarmanninn (e. Spider-Man). Útgáfan er litrík og lífleg með litasamsetningu sem vísar í klassískar ofurhetjusögur og „vinalega nágrannann“ úr teiknimyndablöðunum.

Mættir í Wodbúð
Skórnir eru mættir í Wodbúð, Faxafeni 12. Dlo 2 eru körfuboltaskór sem þú verður að máta, en þeir eru mjög líkir hinum vinsælu Kobe skóm (Mamba línunni) sem slógu í gegn fyrir nokkrum árum.
Þeir fást í stórum sem smáum stærðum (36+) og henta flestum. Þeir sem fíla létta, lipra og þægilega skó munu elska Way of Wade Dlo línuna.




