HomeBónus deildinBónus deild karlaRun and Gun hefur göngu sína í kvöld: Bein útsending hér

Run and Gun hefur göngu sína í kvöld: Bein útsending hér

Körfuboltaáhugafólk fær kærkominn liðsstyrk í kvöld þegar glænýr körfuboltaþáttur, Run and Gun, fer í loftið í beinni útsendingu klukkan 21:00.

Þættinum er stýrt af þeim Mate Dalmay og Tomma Steindórs, sem munu kryfja íslenska körfuboltann af stakri nákvæmni í vetur. Fyrirkomulagið verður með þeim hætti að hitað verður upp vikulega fyrir átök vetrarins með áherslu á mismunandi landshluta hverju sinni.

Í frumrauninni í kvöld verður sjónum beint að Garðabæjarfélögunum Stjörnunni og Álftanesi. Þar verða leikmannahópar liðanna rýndir til hlítar, farið yfir stöðuna fyrir komandi leiktíð og spáð í spilin.

Útsendingin hefst stundvíslega klukkan 21:00 og má fylgjast með þættinum í spilaranum hér að neðan:

Fréttir
- Auglýsing -