9:08
{mosimage}
Lottomatica Roma eru komnir 1-2 undir í einvíginu gegn Montepaschi Siena eftir tap í þríframlengdum leik á útivelli 114-108. Staðan í hálfleik var 42-38 Siena í vil, Jón Arnór skoraði 6 stig á 16 mínútum.
Heimamenn í Montepaschi Siena höfðu forystuna í upphafi leiksins og leiddu 26-22 eftir fyrsta leikhluta. Í hálfleik var staðan 42-38 þar sem að gríðarleg stemmning var í höllinni og baráttan svakaleg.
Í þriðja leikhluta léku gestirnir í Lottomatica Roma vel og náðu þriggja stiga forystu 62-65, en mest náðu þeir fimm stiga forystu 56-61, en einsog áður segir leiddu Roma 62-65 eftir þriðja leikhluta.
Fjórði leikhluti var gríðarlega spennandi og jafn nánast á öllum tölum, Roma höfðu þó meiri forystu og Siena náðu alltaf að jafna eða komast örlítið yfir. Jón Arnór kom Roma yfir með vítaskoti 78-82 og hálf mínúta eftir af venjulegum leiktíma. Rimantas og Josehp Forte skoruðu í tvígang fyrir Siena og jöfnuðu leikinn 82-82. Erazem Lorbek náði að koma Roma yfir 82-84 en Rimantas Kaukenas jafnaði leikinn og framlengja þurfti.
Fyrstu fjögur stigin í fyrstu framlengingunni komu frá heimamönnum og staðan 88-84. Ognjen Askrabic minnkaði muninn með góðu skoti. Mikið gekk á og fékk Jón Arnór sína fimmtu villu og þurfti að yfirgefa völlinn, strákurinn búinn að leika gríðarlega vel. Lonny Baxter skorar úr báðum vítaskotum sínum sem hann fékk í kjölfarið og staðan 90-86 og rúmar tvær mínútur eftir af fyrstu framlengingunni. Montepaschi Siena komust í 94-87 þegar að rúm mínúta var eftir en átta stig á skömmum tíma frá Dejan Bodiroga jafnaði leikinn 95-95. Alex Righetti hjá Roma fékk skot í lokin sem geigaði og framlengja þurfti á ný.
Ognejen Askrabic og Dejan Bodiroga skoruðu fyrir Roma og staðan 95-99, heimamenn jöfnuðu 99-99 á skömmum tíma. Lítið var skorað en Alessandro Tonolli skoraði úr báðum vítaskotum sínum og kom Roma í 99-101. Mikið gekk á og náði hvorugt liðið að skora, Benjamin Eze var hetja heimamanna, hann var nýkominn inná fyrir Lonny Baxter og skoraði hann um leið og hann fékk á sig ruðningsvillu og aftur var jafnt 101-101. Alex Righetti hjá Roma klikkaði aftur, nú á þriggjastigaskoti í lokinn og þriðja framlenginginn staðreynd.
Í þriðju framlengingunni komust Roma í 101-105 með víti frá David Hawkins og þrist frá Ognjen Askrabic. Benjamin Eze minnkaði muninn í 103-105 fyrir Siena þegar að þrjár mínútur voru eftir af þriðju framlengingunni. Vítaskot frá Benjamin Eze og þristur frá Marco Carraretto komu heimamönnum í góða stöðu 109-105 þegar að rúm mínúta var eftir. Roma náðu að minnka muninn niður í 109-108 með þremur vítaskotum og spennan algjörlega að fara með áhorfendur í höllinni. Leikmenn voru farnir að týnast útaf með fimm villur og var Dejan Bodiroga einn af þeim, fimm síðustu stig frá Siena kláruðu þennan magnaða leik og kemur þeim yfir 1-2 í einvíginu.
Leikurinn er einn sá magnaðasti í Ítölsku úrslitakeppninni, þríframlengdur og nánast jafnt á öllum tölum, liðin leiddu mest með þetta 5-7 stig sitt á hvað. Frábær leikur en Romamenn vita að þeir geta vel sigrað deildarmeistaranna og fer næsti leikur fram í Róm fimmtudaginn 7. júní.
Mynd: www.virtusroma.it



