spot_img
HomeFréttirRögnvaldur: Jafnvægislist að forgangsraða peningum

Rögnvaldur: Jafnvægislist að forgangsraða peningum

Rögnvaldur Hreiðarsson dómari og nefndarmaður í dómaranefnd sat fyrir svörum hjá Karfan.is nú á dögunum. En ástæða viðtalsins er uppsprotin af óánægju forráðamanna félaganna um þá ákvörðun að rétt fyrir mót var tilkynnt að þriggja dómara kerfið yrði tekið upp.  Rögnvaldur fer yfir kostnað vegna dómara og hvers vegna þriggja dómarakerfið er betra fyrir leikinn. 
Á hvaða hátt gerir þriggja dómarakerfið leikinn betri?
Almennt er það viðurkennt að án góðrar dómgæslu er hæpið að gæði leiksins verði mikil. Leikurinn er orðinn þannig í dag að það er staðreynd að ekki er hægt að gera þá kröfu að tveir dómarar tryggi þau gæði sem leikurinn þarf. Þriggja dómarakerfið er ekki undantekning öðru nær. Nær allsstaðar er notast við það kerfi og ég tel að ekki muni líða langur tími uns kerfið verður fest í leikreglur.

Forráðamenn félganna gagnrýna það harðlega að farið hafi verið framhjá þeim með innleiðingu á þriggja dómarar kerfinu eftir að þeir höfðu fellt tillöguna á formannafundi. Frá sjónarhorni dómaranefndar geturu sagt hversvegna það var gert?
Aðkoma dómaranefndar að málinu snéri að faglega þættinum eins og t.d. því hvort við teldum mögulegt að manna leikina. Dómaranefnd hefur hvatt til þess að þriggja dómarakerfið yrði tekið upp og stendur að þeirri ákvörðun af heilum hug.
 
Kostnaður við dómara var hækkaður í fyrra og nú þegar þriðji dómari bætist við leikina hækkar kostnaður ennþá meira. Hver eru rökin fyrir því að dómarakostnaður þarf að vera eins hár og hann er á meðan megnið af því fólki sem kemur að hreyfingunni hjá félögunum starfa þar án greiðslu?

Staðreynd málsins hvað efstu deild karla varðar er sú að kostnaður pr. leik var ívið lægri á síðasta tímabili en á tímabilinu þar á undan. Það liggur í samningi sem gerður var við bílaleigu sem lækkaði ferðakostnað auk annarra sérsniðinna lækkana á áður umsömdum ferðakostnaði. Þetta staðfesta tölur frá KKÍ og mikilvægt er að halda því til haga í umræðunni.

Myndi koma til greina að lækka laun dómara í kjölfar þriggja dómarar reglunar til að koma til móts við erfiða peningastöðu félaganna? Væri það ekki eðlilegt þar sem að nú vinna þrír þá vinnu sem samið var um að tveir myndu gera?
Það er vissulega einn valkosturinn og örugglega sá álitlegasti frá hlið þeirra sem greiða. Þar sem ég þekki til á norðurlöndunum stóðu menn í þessum sömu sporum, að kostnaðurinn óx í augum, og fyrir þeim áhyggjum verður að bera virðingu. Félögin gera sjálf kjarasamning við dómarana (KKDÍ) og ég held að ekki hafi verið samið um þriðja dómarann sérstaklega og reyndar ekki heldur um tvo. Samningurinn miðast við kjör eins dómara en það er svo ákvörðun annarra hvort þeir eru tveir eða fleiri. Hvort sanngirnisrök hníga að því að gefa afslátt af umsömdum launum eigi við í þessu tilfelli er álitamál sem allir launamenn geta sett sig inn í.
 
Félögin kvarta yfir því að það sé dýrt að reka deildinnar. Ættu forráðamenn deildanna jafnvel að fara að hugsa sinn gagn  hvað varðar að forgangsraða þeim peningum sem koma inn, jafnvel þá minnka við sig í erlendum leikmönnum?
Ég þekki það persónulega að reka deild hafandi verið stjórnarmaður til nokkurra ára og formaður eitt þeirra. „góðir erlendir leikmenn selja leikinn og búa til tekjurnar“ Ég eins og aðrir þekki þennan frasa og skil vel hvað átt er við. Ekki ætla ég að segja neinum til í þessu og ég veit að allir eru að leggja sig 100% fram og vilja gera vel. Það er töluverð jafnvægislist að forgangsraða peningum og við sem teljum mikilvægt að halda áfram að þróa dómgæslu í takt við þarfir leiksins og þær kröfur sem til dómgæslu eru gerðar og munu áfram verða gerðar vonum auðvitað að sá hluti sem til þess málaflokks fellur muni ekki skerðast og teljum það óráð.
 
Fréttir
- Auglýsing -