spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaRafn Kristjáns eftir tap gegn Hrunamönnum í Dalhúsum "Vantaði smá upp á...

Rafn Kristjáns eftir tap gegn Hrunamönnum í Dalhúsum “Vantaði smá upp á í lokin.”

Hrunamenn sóttu annan sigur sinn í 1. deild karla í kvöld í Dalhúsum gegn Fjölni, 106-111. Hrunamenn eru, eftir fjórar umferðir, í 6. sæti deildarinnar.

Leikurinn var hnífjafn allan tímann og aldrei meira en 8 stig á milli liðanna. Stigaskor beggja liða var mjög hátt sem skýrist af blöndu af mjög góðri skotnýtingu, hröðu spili og á tímum ekki góðri vörn. Undir lokin náðu Fjölnismenn ekki að skora í nokkrum mikilvægum sóknum og Hrunamenn náðu að innsigla sigur með góðum körfum á lokamínútunum. Þeir kláruðu síðan leikinn á flaututroðslu hjá Ahmad Gilbert (39 stig/17 fráköst/5 stoðsendingar/6 stolnir boltar) til að setja punktinn yfir i-ið.

Tölfræði leiksins

Karfan spjallaði við Rafn Kristján Kristjánsson, stigahæsta leikmann Fjölnis í leiknum, sem var skiljanlega ósáttur með tapið og varnarframmistöðu sinna manna.

Fréttir
- Auglýsing -