HomeFréttirPétur: Þurfum að bæta okkar leik

Pétur: Þurfum að bæta okkar leik

  „Þetta er gríðarlega mikilvægt fyrir leikmenn liðsins að fá tækifæri að spila í úrslitakeppninni. Í fyrra vorum við að spila í úrslitakeppninni í 1. deild og núna fáum við að fara í Þjóðleikhúsið á stóra sviðið og það er bara spennandi,“ sagði Pétur Ingvarsson þjálfari Hauka eftir leikinn en Haukar voru síðasta liðið til að tryggja sig inn í úrslitakeppnina þetta tímabilið eftir sigurinn á KFÍ í gær.
Haukar áttu í basli með KFÍ framan af leik og lentu til að mynda 11 stigum undir í öðrum leikhluta. Eftir að allt sauð upp úr í byrjun fjórða leikhluta hrukku Haukar í gang og gerðu út um leikinn á tveimur mínútum.
 
„Þeir lentu í smá vandræðum við stóru mennina hjá okkur og við skoruðum auðveldar körfur. Við vorum með smá forskot þegar við byrjuðum leikinn aftur vorum 7 stigum yfir. Þetta leit ekkert alltof vel út framan af en menn börðust og lögðu sig fram og eftir að hafa tapað síðustu fimm leikjum þá er kærkomið að vinna einn loksins,“ bætti Pétur við.
 
Haukar munu mæta Íslandsmeisturum Snæfells í 8-liða úrslitum en Snæfellingar hafa farið illa með Hauka í viðureignum þeirra í vetur og eru því líklegri til að komast í aðra umferð. Pétur sagði að Haukamenn þyrftu að bæta sinn leik því það væri alveg ljóst að Snæfell komi tilbúið til leiks.
 
„Snæfell er með langbesta liðið í deildinni í dag og við töpuðum með 42 stigum fyrir þeim í síðasta leik og ég held að eðlilegur undirbúningur sé að leyfa þeim ekki að gera hvað sem er í þeirra sóknarleik. Við þurfum að bæta okkar leik alveg gríðarlega og ná einhverjum framförum. Ég veit alveg að Snæfell kemur 100% tilbúið í þetta og þetta verður gríðarlega erfitt fyrir okkur þannig að við verðum að koma tilbúnir í þetta.“

[email protected]

 
Fréttir
- Auglýsing -