Pétur Sigurðsson og lærisveinar í KFÍ lönduðu sínum fyrsta deildarsigri í Domino´s deildinni í kvöld þegar Skallagrímur kom í heimsókn í sannkölluðum nýliðaslag. Framlengja þurfti leikinn þar sem stig af vítalínunni reyndust sigurstigin. Pétur Sigurðsson þjálfari KFÍ sagði að reynslan hefði komið í ljós í restina.
,,Þetta var leikur hinna miklu mistaka, við vorum að spila frekar illa allan leikinn og ekki að fylgja leikplaninu. Hinsvegar lögðum við mikla vinnu á okkur og héldum okkur inni í leiknum allan tímann. Ungu strákarnir stóðu sig frábærlega og gáfu okkur neistann til að hanga inni í þessu. Svo kom reynslan í ljós í restina og við lönduðum þessu tæpt."





