Páll Axel sýndi á sér sparihliðarnar í Boltanum á X-inu hjá Hirti Hjartarsyni í morgun. Páll Axel setti 45 stig í fyrsta leik sínum fyrir Skallagrím þegar þeir heimsóttu KFÍ á Ísafjörð og var þess vegna plataður í stutt spjall til að ræða leikinn. Páll Axel er vanur að fara fyrir sínu liði og lét ekki sitt eftir liggja í æsispennandi og framlengdum leik nýliðanna. Páll setti niður 5 þrista í leiknum og var með 65% nýtingu fyrir innan línuna á þeim 40 mínútum sem hann spilaði í leiknum.
Páll vildi nú ekki gera mikið úr afrekinu þar sem liðið tapaði leiknum og talaði um þetta sem "hver annar dagurinn á skrifstofunni". Fyrir þá sem hafa tíma er auðvelt að mæla með því að hlusta á þá félaga ræða málin en það er hægt á heimasíðu Vísi hér.
Mynd: [email protected]






