spot_img
HomeSubway deildinSubway deild karlaPablo Hernandez til Þorlákshafnar

Pablo Hernandez til Þorlákshafnar

Lárus Jónsson þjálfari Þórs Þ hefur endurnýjað kynni sína af leikmanninum Pablo Hernandez sem lék með honum á Akureyri fyrir þremur árum.

Í tilkynningu Þórs segir:

Þór Þorlákshöfn hefur samið við Pablo Hernandez um að spila með liðinu á næstu leiktíð. Pablo spilaði síðast á Íslandi tímabilið 2019/20 með Þór Akureyri og skoraði þar 15,1 stig og tók 7,6 fráköst ásamt því að vera með 47,5% þriggja stiga nýtingu. Pablo er fjölhæfur framherji sem hefur spilað í silfur og gull deildinni á Spáni síðustu tvö tímabil. Það er mikil tilhlökkun að fá Pablo til okkar í Hamingjuna.

Fréttir
- Auglýsing -